Fara í efni

Fardagafoss Gönguleið

Auðveld ganga sem tekur undir klukkutíma og liggur malarstígur upp að fossinum.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Austurland, Múlaþing
Upphafspunktur
Bílastæði ofan við Áningastein við veg 93, við upphaf leiðar.
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
30 mínútur
Yfirborð
Möl
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Í rigningu getur verið hált, yfir vetrartíman getur verið hált og snjór á gönguleið
Hættur
  • Engar hættur á leiðinni
  • Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Fardagafoss er staðsettur í hlíðum Fjarðarheiðar, í aðeins nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá Egilsstöðum. Gangan hefst við bílastæði ofan við Áningastein, við veg 92 í átt að Seyðisfirði.

Þaðan liggur greiðfær malarstígur upp að gljúfrinu þar sem fossinn fellur fram af klettabrún. Við enda stígsins er gestabók og fallegt útsýni yfir fossinn og gilið. Bak við fossinn leynist lítill hellisskúti sem hægt er að ganga inn í.

Síðasti hluti leiðarinnar krefst smá klifurs, tröppur liggja niður að ánni og þar hefur verið komið fyrir keðju til stuðnings.

Leiðin er um 1,2 km aðra leið og tekur um 20 mínútur að ganga.