Bjargselsbotnar Gönguleið
Um 5 km löng og fremur létt hringleið sem hefst við Hallormsstaðaskóla. Gengið er eftir merktum skógarstíg upp að Hallormsstaðabjargi og þaðan um Hóla og Bjargselsbotna í átt að Þverbjargi og Illaskriðu. Gangan hentar flestum og tekur um 3 klukkustundir.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Austurland, Múlaþing
Upphafspunktur
Bílastæði og upphaf gönguleiðar við Hallormsstaðaskóla
Merkingar
- Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
- Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
- Gras
- Trjákurl
- Möl
- Votlendi
- Blandað yfirborð
Hindranir
- Vað - Óbrúaður lækur, eyrar eða mýrar
- Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gönguleiðin er hringleið sem hefst við Hallormsstaðaskóla.
Til að komast að upphafsstað er ekið eftir vegi 931 í gegnum Hallormsstaðaskóg. Beygt er til vinstri inn á afleggjara og síðan aftur til vinstri að skólanum.
Frá skólanum er gengið eftir skógarstíg sem merktur er með ljósgrænum stikum. Þegar komið er upp undir Hallormsstaðabjarg er beygt til hægri og haldið í suðurátt. Leiðin liggur síðan um framhlaupsurðina Hóla og áfram inn í Bjargselsbotna. Þaðan er gengið í átt að Þverbjargi, að skriðunni sem nefnist Illaskriða.
Gangan er fremur auðveld og hentar flestum sem hafa almenna göngugetu. Um er að ræða um 5 km langa hringleið sem tekur að jafnaði um 3 klukkustundir að ganga.