Ferðaskrifstofuleyfi Ferðadraums ehf. (áður Trans Atlantic ehf.) er fellt úr gildi
Ferðamálastofa hefur fellt niður ferðaskrifstofuleyfi félagsins Ferðadraumur ehf., áður Trans Atlantic ehf., kt. 670904-2370, með skráð leyfi nr. 2006-072. Leyfi félagsins er fellt niður frá og með 4. júní 2026 þar sem félagið uppfyllir ekki skilyrði laga um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun nr. 95/2018 og reglugerðar um Ferðatryggingasjóð nr. 812/2021 með síðari breytingum.
Félagið hefur því ekki lengur heimild til að setja saman, bjóða fram eða selja pakkaferðir eða að milligangast sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni.
Ferðatryggingasjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning og annast heimflutning ferðamanns sé farþegaflutningur hluti pakkaferðar, komi til ógjaldfærni eða gjaldþrots seljanda eða ef leyfi hans er fellt niður af hálfu Ferðamálastofu með heimild í 27. gr. laga nr. 95/2018. Greiðsluskylda er til staðar hvort sem endanlegur samningur um pakkaferð hefur komist á eða ekki, enda sé sýnt fram á greiðslu með fullnægjandi hætti.
Frestur til að senda kröfu í Ferðatryggingasjóð er til og með 5. ágúst 2026. Krafa þarf að berast innan kröfulýsingarfrests. Kröfur sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar til greina. Kröfur eru sendar í gegnum vefgátt á island.is.
Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.