Ferðaskrifstofuleyfi CashCo ehf., 90°N ehf. og YA YA travel agency ehf. felld niður
Ferðamálastofa hefur fellt niður eftirfarandi ferðaskrifstofuleyfi frá og með 20. júlí 2026:
- CashCo ehf. - kt. 670418-0810
- 90°N ehf. - kt. 490315-0710
- YA YA travel agency ehf. - kt. 420724-0470
Leyfi félaganna er fellt niður frá og með 20. júlí 2026 þar sem félögin uppfylla ekki skilyrði laga um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun nr. 95/2018 og reglugerðar um Ferðatryggingasjóð nr. 812/2021 með síðari breytingum.
Félögin hafa því ekki lengur heimild til að setja saman, bjóða fram eða selja pakkaferðir eða að milligangast sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni.
Ferðatryggingasjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning og annast heimflutning ferðamanns sé farþegaflutningur hluti pakkaferðar, komi til ógjaldfærni eða gjaldþrots seljanda eða ef leyfi hans er fellt niður af hálfu Ferðamálastofu með heimild í 27. gr. laga nr. 95/2018. Greiðsluskylda er til staðar hvort sem endanlegur samningur um pakkaferð hefur komist á eða ekki, enda sé sýnt fram á greiðslu með fullnægjandi hætti.
Frestur til að senda inn kröfu er til 21. september 2026
Frestur til að senda kröfu í Ferðatryggingasjóð er til og með 21. september 2026. Krafa þarf að berast innan kröfulýsingarfrests. Kröfur sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar til greina. Kröfur eru sendar í gegnum vefgátt á island.is.
Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.