Fara í efni

Viðhorf íbúa [á Höfuðborgarsvæðinu] til ferðamanna og ferðaþjónustu

Nánari upplýsingar
Titill Viðhorf íbúa [á Höfuðborgarsvæðinu] til ferðamanna og ferðaþjónustu
Lýsing

Könnun þessi er gerð af Maskínu fyrir Markaðsstofu Höfuðborgarsvæðisins. Hún er um viðhorf til ferðaþjónustu og ferðamanna og er lögð fyrir íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Könnunin fór fram dagana 4. apríl til 11. apríl 2025.

Meðal þess sem kemur fram er að 71% íbúa höfuðborgarsvæðisins eru jákvæðir í garð ferðamanna. Um er að ræða aukningu frá 2024, þegar hlutfall íbúa með jákvætt viðhorf var 66%. Könnunin var gerð af Maskínu fyrir hönd Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins í apríl 2025 og er endurtekning á könnun sem var gerð á sama tíma í fyrra.

Í könnuninni kemur fram að meirihluti íbúa, eða 72%, telur að ferðaþjónusta hafi jákvæð áhrif á atvinnulíf á höfuðborgarsvæðinu. Um 75% eru einnig þeirra skoðunar að ferðaþjónusta hafi jákvæð efnahagsleg áhrif á höfuðborgarsvæðinu. Þegar spurt er um hvað sé jákvæðast við ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu er oftast nefnt að greinin skapi tekjur, en þar á eftir er einnig minnst á styrkingu mannlífs í borginni og eflingu veitingastaða, kaffihúsa og bara. Til að mynda telja 83% íbúa höfuðborgarsvæðisins að ferðaþjónusta hafi jákvæð áhrif á framboð veitingastaða. Þegar spurt er um neikvæð áhrif ferðaþjónustu nefna íbúar höfuðborgarsvæðisins helst fjölda ferðamanna, umferð bílaleigubíla og hópferðabifreiða ásamt áhrifa á leiguhúsnæði. Heilt yfir litið eru þó flest, eða 61%, þeirrar skoðunar að jákvæðar hliðar ferðaþjónustunnar vegi þyngra samanborið við þau 14% sem telja neikvæðar hliðar vega þyngra.

Eins og fyrri kannanir hafa leitt í ljós er nokkur munur á afstöðu íbúa höfuðborgarsvæðisins til fjölda ferðamanna eftir árstíðum. Þannig telja 53% íbúa að fjöldi ferðamanna í miðborg Reykjavíkur sé mikill eða of mikill yfir sumarmánuðina, en aftur á móti lækkar það hlutfall niður í 22% á veturna. Alls telja 44% aðspurðra fjölda ferðamanna í miðborg Reykjavíkur hæfilegan á sumrin en yfir vetrarmánuðina segja 64% fjöldann hæfilegan. Hvort sem um er að ræða sumar eða vetur er meirihluti íbúa höfuðborgarsvæðisins, eða 82%, þeirra skoðunar að ferðamenn séu vinsamlegir í samskiptum.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Viðhorf Íslendinga til ferðafólks og ferðaþjónustu
Útgáfuár 2025
Útgefandi Markaðsstofa Höfuðborgarsvæðisins
Leitarorð 2025, reykjavík, viðhorf, útgjöld, ferðamenn, ferðahegðun, tölfræði, talnaefni, höfuðborg, höfuðborgin, höfuðborgarsvæðið, Markaðsstofa Höfuðborgarsvæðisins