Fara í efni

Samfélagsleg áhrif millilandaflugs á Akureyri

Nánari upplýsingar
Titill Samfélagsleg áhrif millilandaflugs á Akureyri
Lýsing

Rannsóknin Samfélagsleg áhrif millilandaflugs á Norður- og Austurlandi var unnin í samstarfi Háskóla Íslands og Markaðsstofu Norðurlands með stuðningi Sóknaráætlunar Norðurlands eystra, Sóknaráætlun Austurlands og Rannsóknasjóðs Háskóla Íslands.

Hér verður fjallað um umfang og áhrif millilandaflugs um Akureyrarflugvöll á Norður- og Austurlandi í ljósi fyrri rannsókna á samfélagsáhrifum flugvalla og flugfélaga. Ríflega fjörutíu ára saga millilandaflugs um Akureyrarflugvöll verður rakin í samhengi við þróun farþegaflugs á Íslandi og annars staðar á Vesturlöndum. Lagt verður mat á áhrif millilandaflugsins frá Akureyri á svæðisbundin ójöfnuð í utanlandsferðum og upptökusvæði þess á Norður- og Austurlandi kortlagt. Þá verður bakgrunnur flugfarþega skoðaður og mat lagt á áhrif beina flugsins á einstaka hópa. Einnig verða helstu ástæður flugferða skoðaðar og mat lagt á umfang tengiflugs og endanlega áfangastaði flugfarþega. Þá verða metin huglæg áhrif millilanda flugsins á lífsgæði flugfarþega og annarra íbúa Norður- og Austurlands. Að lokum verður lagt heildarmat á samfélagsleg áhrif og framtíðarhorfur millilandaflugs um Akureyrarflugvöll í ljósi alþjóðlegra rannsókna á þessu sviði.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Þóroddur Bjarnason
Flokkun
Flokkur Umfang og áhrif
Útgáfuár 2026
Útgefandi Markaðsstofa Norðurlands
ISBN 978-9935-35-087-9
Leitarorð akureyri, flug, akureyrarflugvöllur, millilandaflug