Könnun á afkomu hótelfyrirtækja 2018 með samanburði við fyrri ár - júlí
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | Könnun á afkomu hótelfyrirtækja 2018 með samanburði við fyrri ár - júlí |
Lýsing | Könnun á afkomu hótelfyrirtækja 2018, sem KPMG vann fyrir Ferðamálastofu, sýnir verulegan mun á afkomu fyrirtækja í Reykjavík og á landsbyggðinni. Samanburður við fyrri ár sýnir að afkoman hefur farið lækkandi öll árin frá 2016 bæði í Reykjavík og úti á landi. Könnunin var gerð í framhaldi af úttekt sem Ferðamálastofa fól KPMG að gera á rekstri fyrirtækja á fyrri hluta ársins 2018. Niðurstöður þóttu áhugaverðar og mikil umræða skapaðist um stöðu greinarinnar í kjölfar birtingar hennar. Því var talin ástæða til að endurtaka könnunina og fá fram upplýsingar um rekstur alls ársins 2018. Taprekstur fyrir vestan og norðanSamanburður við ári 2017 leiðir í ljós að rekstrarhagnaður sem hlutfall af tekjum var því sem næst óbreyttur í Reykjavík (12,6-12,7%) en lækkaði á Suðurlandi og Suðurnesjum. Á Vesturlandi dró úr rekstrartapi. Á Norðurlandi urðu ekki miklar breytingar á milli ára en þar er einnig tap. Þátttaka var misgóð eftir landshlutum og vert að hafa það í huga þegar niðurstöður eru túlkaðar. Laun hærra hlutfall út á landiLaun sem hlutfall af tekjum eru að jafnaði hærra hlutfall af tekjum hjá hótelum á landsbyggðinni en í Reykjavík. Laun sem hlutfall af tekjum námu 44,8% hjá hótelum á landsbyggðinni 2018 en þetta hlutfall var 36,3% í Reykjavík. Veitingasala er almennt hærra hlutfall af tekjum hjá fyrirtækjum úti á landi er í Reykjavík og skýrir það að hluta hærri launakostnað. |
Skráarviðhengi |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Alexander G. Eðvardsson |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Umfang og áhrif |
Útgáfuár | 2019 |
Útgefandi | Ferðamálastofa |
ISBN | 978-9935-9317-4-0 |
Leitarorð | hótel, afkoma, landsbyggð, landsbyggðin, tekjur, rekstur, hagnaður, arður, arðsemi |