Viðhorf til ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu
| Nánari upplýsingar | |
|---|---|
| Titill | Viðhorf til ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu |
| Lýsing | Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru almennt jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum samkvæmt niðurstöðum viðhorfskönnunar sem var lögð fyrir íbúa á höfuðborgarsvæðinu dagana 19.-30. mars 2015. Einungis 2,3% íbúa segjast vera neikvæð gagnvart ferðamönnum á höfuðborgarsvæðinu, þar af segjast 2% fremur neikvæð og 0,3% mjög neikvæð. Um 70% segja fjölda ferðamanna í sínu hverfi vera hæfilegan yfir sumarmánuðina og athygli vekur að fleiri segja fjöldann vera of lítinn en of mikinn. Þegar spurt var um fjölda ferðamanna í miðborginni telja tveir af hverjum þremur hann vera hæfilegan. Fjölmargar aðrar áhugaverðar niðurstöður er að finna í könnuninni en Maskína sá um framkvæmd og úrvinnslu. Könnunin í heild er aðgengileg hér að neðan. |
| Skráarviðhengi | |
| Flokkun | |
|---|---|
| Flokkur | Stefnumótun og skipulag |
| Útgáfuár | 2015 |
| Útgefandi | Höfuðborgarstofa |
| Leitarorð | viðhorf, höfuðborgarstofa, uppbygging, landkynning, fjöldi, fjöldi ferðamanna, stefnumótun, stefnumörkun, ímynd, reykjavík, höfuðborgin, höfuðborgarsvæðið, kannanir, könnun |