Áfangastaðaáætlun Vesturlands
| Nánari upplýsingar | |
|---|---|
| Titill | Áfangastaðaáætlun Vesturlands |
| Lýsing | Í áætluninni er að finna ýmsar upplýsingar um stöðu ferðaþjónustu á Vesturlandi, en henni er ætlað að styjða við ábyrga þróun ferðamála á svæðinu. Heildstæð stefnumótunÁfangastaðaáætlanir eru unnar í samvinnu við markaðsstofur landshlutanna. Um er að ræða heildstæða stefnumótun þar sem litið er til skipulags og samhæfingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði, þar með talið þarfir gesta, heimamanna, fyrirtækja og náttúru. Áhersla á samtal og samráðÁ meðan á gerð Áfangastaðaáætlunar Vesturlands stóð var lögð mikil áhersla á samtal við íbúa og aðra hagaðila um framtíðarsýn þeirra varðandi þróun ferðamála á svæðinu. Þetta samtal og samráð lagði grunninn að stefnumótun ferðamála fyrir Vesturland. Í áætluninni eru því sett fram framtíðarsýn, markmið og aðgerðaáætlun sem verður höfð að leiðarljósi næstu ár við uppbyggingu ferðamála. |
| Skráarviðhengi | Ná í viðhengi |
| Flokkun | |
|---|---|
| Flokkur | Stefnumótun og skipulag |
| Útgáfuár | 2019 |
| Leitarorð | dmp, vestfirðir, áfangastaðaáætlun, áfangastaðaáætlanir, markaðsstofa vesturlands, vesturlandsstofa, ferðamálastofa |