Survey among museum guests in three museums & exhibitions in Reykjavík, Winter 2025/26 – Pilot Study
| Nánari upplýsingar | |
|---|---|
| Titill | Survey among museum guests in three museums & exhibitions in Reykjavík, Winter 2025/26 – Pilot Study |
| Lýsing | RMF hefur gefið út nýja skýrslu, Survey Among Museum Guests in Three Museums & Exhibitions in Reykjavík, Winter 2025/26 – Pilot Study, en verkefnið var unnið í samstarfi við Visit Reykjavík og Rannsóknasetur skapandi greina. Rannsóknin var framkvæmd á tímabilinu nóvember 2025 til apríl 2026 og byggir á svörum 262 gesta á Þjóðminjasafni Íslands, Landnámssýningunni og Listasafni Íslands. Þessi forannsókn var hluti af starfsnámi Rike Nissen hjá RMF undir handleiðslu Veru Vilhjálmsdóttur, sérfræðingi hjá RMF. Markmið rannsóknarinnar var að afla betri þekkingar á ferðavenjum, áhugamálum, hvötum og upplifun gesta sem heimsækja söfn og sýningar í Reykjavík. Skýrslan veitir innsýn í hlutverk menningartengdrar ferðaþjónustu í höfuðborginni og hvernig söfn og sýningar falla inn í heildarupplifun ferðamanna á Íslandi. Niðurstöðurnar sýna að gestahópurinn var almennt vel menntaður og svarendur voru að mestu á aldrinum 25–44 ára. Flestir af erlendu gestunum voru í sinni fyrstu heimsókn til Reykjavíkur og heimsókn á safn var gjarnan hluti af fjölbreyttri ferðaupplifun sem einnig fól í sér heimsóknir í náttúruböð, norðurljósaferðir og aðra afþreyingu. Rannsóknin sýnir jafnframt að gestir eru almennt mjög ánægðir með safnaheimsóknir sínar. Sérstaklega var jákvætt mat lagt á fræðslugildi safnanna, aðgengi, fjölskylduvænleika og skemmtanagildi. Margir gestir lögðu áherslu á mikilvægi gagnvirkra og upplifunarmiðaðra þátta og bentu niðurstöðurnar til þess að samspil fræðslu og afþreyingar sé lykilatriði í jákvæðri upplifun safnagesta. Þá kom fram að flestir gestir uppgötvuðu söfnin í gegnum netleit eða Google Maps, sem undirstrikar mikilvægi sterks stafræns sýnileika fyrir menningarstofnanir. Skýrslan er fyrsta skref í frekari rannsóknum á menningarferðamennsku í Reykjavík og getur nýst söfnum, áfangastaðastofum og öðrum hagaðilum við þróun þjónustu og upplifunar fyrir gesti. |
| Skráarviðhengi | |
| Höfundar | |
|---|---|
| Nafn | Vera Vilhjálmsdóttir |
| Nafn | Rike Nissen |
| Flokkun | |
|---|---|
| Flokkur | Menning og saga |
| Útgáfuár | 2026 |
| Útgefandi | Rannsóknamiðstöð ferðamála |
| ISBN | 978-9935-505-34-7 |
| Leitarorð | reykjavík, safn, söfn, sýningar, minjasafn, minjasöfn |