| Lýsing |
Hér eru birtar niðurstöður rannsóknar á ferðalögum ferðamanna utan helstu ferðamannaleiða hérlendis. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að skoða annars vegar áhrif vegakerfis og yfirborðs vega á ferðalög erlendra ferðamanna og hins vegar að fanga þátt nýrra ferðamannaleiða í ákvörðunum ferðamanna um ferðatilhögun og heimsóknir þeirra í dreifbýli. Framkvæmdin var spurningakönnun og örviðtöl meðal ferðamanna sem sumarið 2024 heimsóttu tvö dreifbýlissvæði á Norðurlandi, Vatnsnes og Melrakkasléttu, en svæðin eru bæði á nýrri ferðamannaleið, Norðurstrandarleið – Arctic Coast Way. Rannsóknin er önnur tveggja rannsókna sem Rannsóknamiðstöð ferðamála framkvæmdi á þessum sömu svæðum sumarið 2024. Meðan þessi rannsókn sneri að ferðamönnum á leið um rannsóknarsvæðin var hinni beint að heimamönnum á Melrakkasléttu og Vatnsnesi. |