| Lýsing |
Sumarið 2025 gerði Rannsóknamiðstöð ferðamála könnun meðal ferðamanna við Kárahnjúkastíflu. Könnunin var unnin fyrir Landsvirkjun og er hluti af röð rannsókna á upplifun og viðhorfum ferðamanna á virkjanasvæðum. Könnunin varpar ljósi á hvernig ferðafólk upplifir landslag þar sem náttúra, víðerni og mannvirki mætast. Meirihluti svarenda kom til að upplifa náttúru og óbyggð víðerni og flestum þótti svæðið áhrifamikið, fallegt og aðgengilegt. Mannvirki á svæðinu höfðu almennt ekki neikvæð áhrif á upplifun ferðamanna. Kárahnjúkastífla, Hálslón og virkjunin sjálf voru í augum margra forvitnileg mannvirki og hluti af jákvæðri upplifun – oft hápunktur heimsóknarinnar. |