Fara í efni

Argos / Trésmiðja Kára

Árið 1985 var blásið til hugmyndasamkeppni um búnað á tjaldsvæðum og hönnun á þjónustuhúsum. Alls bárust 19 tillögur og hlaut 1. verðlaun tillaga Grétars Markússonar og Stefáns Arnar Stefánssonar arkitekta FAÍ (en þeir reka saman arkitektastofuna Argos) og Björns Jóhannssonar og Einars E. Sæmundsen landslagsarkitekta FILA, en Gunnar St. Ólafsson sá um verkfræðilega ráðgjöf. Reynir Adamsson arkitekt FAÍ hlaut 2. verðlaun en 5 aðrar tillögur hlutu innkaup.

Margar mögulegar útfærslur

Þjónustuhús þessi, sem nú eru smíðuð í ýmsum útgáfum á Trésmíðaverkstæði Kára Lárussonar í Dalabyggð, urðu strax vinsæl og hafa verið sett upp á mörgum helstu ferðamannastöðum landsins. Grunneining húsanna er ávallt sú sama, 2.4 x 2.4 m, þau eru byggð upp af burðarvirki úr tré, hornstoðum og bitum í gólfi og undir þaki. Þökin eru úr þykkum krossviði, klædd þykkum, svörtum asfaltpappa með sendinni áferð. Einingarnar eru festar við steyptar undirstöðueiningar, sem fylgja húseiningunum, en alls geta fjórar einingar komið saman á einni undirstöðu. Í algengustu gerðinni eru tveir salernisklefar með handlaugum í öðrum helmingi hússins en vaskbekkur í hinum. Skjólveggir ganga þá út frá hornum og eru notaðir til lokunar yfir vetrartímann. Mörg tilbrigði eru til við þessa gerð og eru nokkur þeirra sýnd hér neðar á síðunni. Vert er að geta sérstaklega einingar, sem ætluð er fötluðu fólki, þar er heil eining notuð fyrir salerni, hjálparslár og vask en jafnframt komið fyrir borðplötu með dýnu, sem nota má sem skiptiborð fyrir bleyjubörn. Stökum einingum má raða saman að vild en einnig er hægt að fella tvær eða þrjár einingar saman undir heilu þaki.


Nánari upplýsingar

Hér að neðan má sjá myndir og teikningar af nokkrum húsum og tillögur að húsum. Þeim sem hafa hug á að kynna sér húsin betur og nýta þau er bent á að hafa samband við Trésmíðaverkstæði Kára Lárussonar.

Þjónustuhús
Þjónustuhús við tjaldsvæðið á Bakkafirði.

Þjónustuhús
Þjónustuhús í Vesturdal í Jökuksárgljúfrum - mynd 1.

Þjónustuhús
Þjónustuhús í Vesturdal í Jökuksárgljúfrum - mynd 2.

Fuglaskoðunarhús
Hugmynd að fuglaskoðunarhúsi.

Hreinlætishús
Teikning að hreinlætishúsi í Hólmatungum í Jökulsárgljúfrum (skoða stærri útgáfu sem PDF)

Hreinlætishús
Tillaga að þjónustihúsi í Snæfellsbæ (skoða stærri útgáfu sem PDF)

Hreinlætishús
Teikningar að hreinlætishúsi á Stokkaseyri (skoða stærri útgáfu sem PDF)

Þjónustuhús
Þjónustuhús við tjaldsvæðið í Tungudal í Ísafirði - mynd 1.

Þjónustuhús
Þjónustuhús við tjaldsvæðið í Tungudal í Ísafirði - mynd 2.