Fara í efni

Skagafjörður gæðaáfangastaður Íslands 2015

EDEN logoFerðamálastofa er fyrir Íslands hönd aðili að Evrópska EDEN-verkefninu, sem stendur fyrir „European Destination of Excellence“. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á gæðum, fjölbreytileika og sameiginlegum einkennum Evrópskra áfangastaða og kynna til sögunnar nýja, lítt þekkta, áfangastaði vítt og breitt um Evrópu þar sem áhersla er lögð á ferðaþjónustu í anda sjálfbærni.

Matartengd ferðaþjónusta þema ársins

Af þessu tilefni er haldin samkeppni um gæða áfangastaði í Evrópu annað hvert ár með nýju þema í hvert sinn, en þema ársins 2015 var matartengd ferðaþjónusta. Sérstök valnefnd yfirfór þær umsóknir sem bárust frá íslenskum áfangastöðum en nefndin var skipuð þeim Guðmundi Jóni Guðmundssyni fulltrúa Beint frá býli, Sigríði Kristjánsdóttur fulltrúa Nýsköpunarmiðstöðvar, Ragnheiði Sylvíu Kjartansdóttur fulltrúa Íslandsstofu og Láru Pétursóttur fulltrúa SAF.

Matarkistan Skagafjörður ruddi veginn

Eftir yfirferð umsókna ákvað valnefnd EDEN verkefnisins á Íslandi að útnefnda Sveitarfélagið Skagafjörð sem gæðaáfangastað Íslands 2015 fyrir verkefnið Matarkistan Skagafjörður. Í niðurstöðu valnefndar segir:

 „Matarkistan Skagafjörður á sér langa sögu og fyrsta samstarfsverkefni sinnar tegundar á sviði matartengdrar ferðaþjónustu hér á landi. Má því segja að verkefnið hafi rutt veginn og undirbúið jarðveginn fyrir önnur slík verkefni víða um land og sé því sannkallað frumkvöðlaverkefni. Afurðir verkefnisins hafa verið margar og fjölbreyttar í gegnum tíðina, en þar má m.a. nefna árlega Hrossaveislu, fyrirlestra og námsefni á vegum Hólaskóla og matreiðslubókina Eldað undir bláhimni. Nefndin telur verkefnið vel að heiðrinum komið og vonast til að tilnefningin verði til að efla enn frekar matartengda ferðaþjónustu í Skagafirði, sem og á landinu öllu

Skaftárhreppur - Hvað er í matinn?

Annað sætið hlaut Skaftárhreppur fyrir verkefnið Hvað er í matinn? Í niðurstöðu valnefndar segir:

“Hvað er í matinn? er afar áhugavert og metnaðarfullt verkefni sem nefndin telur eiga góða möguleika á að vaxa og dafna. Sérstaklega athygli vekur sú áhersla verkefnisins að endurverkja gamlar matarhefðir á svæðinu og efla atvinnulíf með því að þróa frekari fullvinnslu afurða í heimabyggð. Gott dæmi um þetta eru nýstofnað handverkssláturhús á Seglbúðum og endurvakning gamalla hefða við vinnslu og neyslu melgresis. Nefndin telur fullvíst að spennandi verði að fylgjast með framþróun þessa metnaðarfulla verkefnis á næstu misserum.“

Hvatningarstyrkur

Þar sem tilnefningu frá EDEN verkefninu fylgir ekki stuðningur í formi fjármagns, hefur Ferðamálastofa ákveðið að veita s.k. hvatningarstyrk til Matarkistunnar Skagafjarðar að upphæð kr. 250.000 til undirbúnings á matartengdum ferðapakka um Skagafjörð.

Ferðamálastofa óskar aðstandendum verkefnanna beggja innilega til hamingju með góðan árangur og þakkar þeim fyrir metnaðarfullt starf í þágu matartengdrar ferðaþjónustu. 

Allar nánari upplýsingar um EDEN verkefnið má finna á síðunni www.ferdamalastofa.is/eden. Spurningum varðandi verkefnið svarar Hrafnhildur Ýr á netfangið hrafnhildur@ferdamalastofa.is eða í síma 535 5500.

Fyrirvari:

Framkvæmdasjórn Evrópusambandsins

EDEN-verkefnið nýtur fjárhagstuðnings COSME-verkefnis (2014-2020) Evrópusambandsins.

Upplýsingarnar sem er að finna á þessari vefsíðu endurspegla eingöngu skoðanir höfundar og eru alfarið á hans ábyrgð. Ekki skal líta svo á að þær endurspegli skoðanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins eða Framkvæmdaskrifstofu lítilla og meðalstórra fyrirtækja (EASME) og framkvæmdastjórnin eða EASME bera ekki ábyrgð á mögulegri notkun á upplýsingum sem hér er að finna.