Endurskoðaðar leiðbeiningar og gátlistar vegna öryggisáætlana
Samkvæmt lögum um Ferðamálastofu nr. 96/2018 ber þeim sem framkvæma skipulagðar ferðir á íslensku yfirráðasvæði að hafa öryggisáætlun fyrir hverja tegund ferðar.
Ferðamálastofa hefur nýlega yfirfarið og uppfært leiðbeiningar og dæmi sem ferðaþjónustuaðilar geta nýtt sér við gerð öryggisáætlana. Meðal þess sem hefur verið endurskoðað eru leiðbeinandi gátlistar fyrir mismunandi tegundir ferða og afþreyingar.
Gátlistunum er ætlað að auðvelda fyrirtækjum gerð og reglulega endurskoðun öryggisáætlana og draga fram þau atriði sem mikilvægt er að hafa í huga eftir eðli ferða og starfsemi. Jafnframt eru þeir hafðir til hliðsjónar þegar Ferðamálastofa fer yfir öryggisáætlanir í tengslum við eftirlit.
Gátlistarnir ná meðal annars til áhættumats, verklagsreglna, menntunar og þjálfunar leiðsögumanna ogannars starfsfólks, öryggisbúnaðar, upplýsingagjafar til þátttakenda og viðbragða við neyðartilvikum o.fl.
Ný og endurbætt dæmi
Samhliða endurskoðun gátlistanna hefur annað efni á vef Ferðamálastofu verið yfirfarið og uppfært. Þar má meðal annars finna dæmi um útfyllt áhættumat fyrir ferð um Gullna hringinn og dæmi um verklagsreglur fyrir slíka ferð.
Markmiðið með efninu er að veita ferðaþjónustuaðilum hagnýta aðstoð við gerð öryggisáætlana og stuðla að því að þær séu lifandi verkfæri í daglegum rekstri. Mikilvægt er að öryggisáætlanir taki mið af starfsemi fyrirtækja, séu reglulega endurskoðaðar og að leiðsögumenn og annað starfsfólk þekki efni þeirra og hafi greiðan aðgang að þeim.
Endurskoðun leiðbeininganna og gátlistanna styður við áherslur stjórnvalda um aukið öryggi í ferðaþjónustu og markmið um að efla öryggismenningu og markvisst forvarnarstarf í greininni.
Ferðamálastofa hvetur ferðaþjónustuaðila og aðra sem nýta efnið til að senda ábendingar um leiðbeiningarnar og gátlistana auk þess sem hafa samband í gegnum netfangið oryggi@ferdamalastofa.is ef spurningar vakna við notkun þeirra.
Skoða leiðbeiningar, dæmi og gátlista vegna öryggisáætlana
Mynd með frétt: Magic K á Pexels.