Fara í efni

Áskorun um kröfulýsingu - Gunnarshólmi Guesthouse

Ferðaskrifstofuleyfi Gunnarshólma Guesthouse., kt. 550610-0430, hefur verið fellt úr gildi þar sem ferðaskrifstofurekstri hefur verið hætt.

Starfsemi ferðaskrifstofunnar var tryggingaskyld vegna sölu pakkaferðar og samtengdrar ferðatilhögunar samkvæmt VII. kafla laga nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Samkvæmt 25. gr. er tryggingunni ætlað að endurgreiða fé sem viðskiptavinur hefur greitt vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar.

Með vísan til 27. gr. er hér með skorað á þá viðskiptavini fyrirtækisins, sem telja sig eiga kröfu á hendur því, sbr. ofangreint, að leggja fram skriflegar kröfulýsingar í tryggingarféð innan 60 daga frá birtingu áskorunar þessarar.

Kröfulýsingareyðublað er að finna í þjónustugátt Ferðamálastofu ( www.ferdamalastofa.is ) og skal krafan send rafrænt í gegnum þjónustugáttina. Með skulu fylgja nauðsynleg sönnunargögn um kröfuna, svo sem farseðlar og kvittanir.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5355500 eða á netfanginu mail@ferdamalastofa.is.


F. h. Ferðamálastofu,
Nanna Björnsdóttir, lögfræðingur.
mail@ferdamalastofa.is
Sími 535 5500