Fara í efni

6,9% fækkun milli ára í febrúar

6,9% fækkun milli ára í febrúar

Brottfarir erlendra farþega* frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 149 þúsund í nýliðnum febrúar eða um ellefu þúsund færri en í febrúar árið 2018, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkun milli ára nemur 6,9%.

Bretar og Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í febrúar eða 45,3% brottfara. Um var að ræða fækkun á milli ára hjá báðum þjóðernum. Bretum fækkaði um 9% og Bandaríkjamönnum um 19%.

Frá áramótum hafa 288 þúsund erlendra farþega farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 6,4% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.


fjölmennustu þjóðerni febrúar 2019Fjölmennustu þjóðernin

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í febrúar í ár tilkomnar vegna Breta og Bandaríkjamanna, sem fyrr segir. Bretar voru fjölmennastir, um 42.700 talsins, og brottfarir Bandaríkjamanna komu þar á eftir en þær mældust um 24.700. Samtals voru brottfarir þessara tveggja þjóða 45,3% af heildarbrottförum.

Kínverjar voru þriðju í röðinni hvað fjölda brottfara varðar í febrúar en brottfarir þeirra voru 9.800 talsins (6,6% af heild) og fjölgaði þeim um 14,5% milli ára. Brottfarir Þjóðverja voru í fjórða sæti, um 6.900 talsins (4,6% af heild) álíka margar og árinu áður.

Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Frakka (4,6% af heild), Pólverja (3,9% af heild), Kanadamanna (2,8% af heild), Íra (2,4% af heild), Ítala (2,2% af heild) og Spánverja (2,1% af heild).

Ferðir Íslendinga utan

Um 40 þúsund Íslendingar fóru utan í febrúar í ár eða 0,9% fleiri en í febrúar 2018. Frá áramótum hafa 81 þúsund Íslendingar farið utan eða 2,4% fleiri en á sama tímabili í fyrra.

*Nánari upplýsingar

Talning Ferðamálastofu og Isavia er hugsuð sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum. Um er að ræða handtalningu áður en komið er inn á brottfararsvæði og tölurnar ber að skoða með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér. Talningarnar ná yfir alla sem fara í gegnum hefðbundna öryggisleit.
Ítreka ber að flestir skiptifarþegar eru ekki inni í þessum tölum. Niðurstöður úr könnnum sem Isavia hefur látið framkvæma meðal brottfararfarþega benda til að um 93% brottfararfarþega yfir vetrartímann séu að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi og gisti eina eða fleiri nætur. Þeir sem koma inn í landið án þess apð gista hafa mælst um 2% sjálftengifarþegar hafa mælst á bilinu 2-4% og erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma á bilinu 1,4-3,4%. Sjá nánar
Ferðamálastofa áréttar að fjöldi brottfara erlendra farþega gefur vísbendingu um þróun í komum ferðamanna til landsins. Til að álykta um breytingar á umsvifum í ferðaþjónustu þarf að líta til fleiri mælikvarða s.s. fjölda gistinótta og útgjalda ferðamanna.
Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar eru undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Ferðamenn febrúar 2019