Fara í efni

42.600 brottfarir erlendra farþega í júní

42.600 brottfarir erlendra farþega í júní

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 42.600 í nýliðnum júnímánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia, eða sjö sinnum fleiri en í júní 2020, þegar brottfarir voru um sex þúsund. 

Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í júní eða um helmingur brottfara.

Frá áramótum hafa tæplega 75 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi sem er um 78% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru brottfarir erlendra farþega tæplega 342 þúsund.

 

Langflestar brottfarir í júní má rekja til Bandaríkjamanna eða um helming. Þar á eftir fylgja brottfarir Pólverja (8,6% af heild), Þjóðverja (7,5% af heild), Breta (5,3% af heild) og Frakka (4,2% af heild). Samtals voru brottfarir fimm stærstu þjóðerna 76%.

Brottfarir Íslendinga

Brottfarir Íslendinga í júní voru um 13.500 talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær ríflega fimm þúsund. Brottfarir Íslendinga frá áramótum eru um 32.400 eða 65,8% færri en á sama tímabili í fyrra.

Nánari upplýsingar

Nánari skiptingu á milli þjóðerna má í töflunni hér að neðan og frekari upplýsingar sjá undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Niðurstöður um brottfarartalningar má jafnframt nálgast í Mælaborði ferðaþjónustunnar undir liðnum Farþegar.