Fara í efni

11% fækkun á milli ára í febrúar

Brottfarir erlendra farþega* frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 133 þúsund í nýliðnum febrúar eða um 16 þúsund færri en í febrúar árið 2019 samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Fækkun nemur 10,7% milli ára. Er þetta annað árið í röð sem brottförum farþega fækkar í febrúar og kemur í framhaldi af 13% fækkun í janúar.

Bretar voru fjölmennastir í febrúar eða tæplega þriðjungur ferðamanna og fækkaði þeim um 4,7% milli ára.

Bandaríkjamenn voru næstfjölmennastir, 13,1% af heild, en brottfarir þeirra voru um sjö þúsund færri en í febrúar 2019 eða um 29,3% milli ára.

Fækkun Bandaríkjamanna og Kínverja vegur langþyngst í fækkun farþega í febrúar.

Frá áramótum hafa 254 þúsund erlendra farþega farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 11,9% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.


Fjölmennustu þjóðernin

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í febrúar tilkomnar vegna Breta sem fyrr segir en brottfarir þeirra voru tæplega 41 þúsund. Bandaríkjamenn voru í öðru sæti en brottfarir þeirra voru um 17.500 talsins eða 29,3% færri en í febrúar árið áður. Í þriðja sæti voru brottfarir Frakka, um 9.500 og fjölgaði þeim um 40,2% milli ára.

Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Þjóðverja (6,3% af heild), Kínverja (6,1% af heild), Eistlendinga, Letta og Litháa (3,2% af heild), Íra (2,5% af heild), Pólverja (2,3% af heild), Hollendinga (2,0% af heild) og Kanadamanna (1,9% af heild).

 

Ferðir Íslendinga utan

Um 34 þúsund Íslendingar fóru utan í febrúar í ár eða 15,2% færri en í febrúar 2019. Frá áramótum hafa 72.500 Íslendingar ferðast utan eða um 10,6% færri en árið áður.

 

Nánari upplýsingar*

Fjöldi ferðamanna eftir þjóðerni er metinn út frá kerfisbundnu úrtaki sem tekið er meðal farþega áður en komið er inn á brottfararsvæði Keflavíkurflugvallar. Niðurstöður eru hugsaðar sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum og ber að skoða þær með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér.
Gagnasöfnun fer fram alla mánuði ársins þar sem farþegar á leið úr landi eru taldir eftir helstu þjóðernum. Gera má gera ráð fyrir að skekkja í hlutfalli hvers þjóðernis sé að meðaltali innan við +/- 0,3% í mánuði. 
Ítreka ber að flestir skiptifarþegar eru ekki inni í þessum tölum. Niðurstöður úr könnnum sem Isavia hefur látið framkvæma meðal brottfararfarþega benda til að um 93% brottfararfarþega yfir vetrartímann séu að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi og gisti eina eða fleiri nætur. Þeir sem koma inn í landið án þess að gista hafa mælst um 2% sjálftengifarþegar hafa mælst á bilinu 2-4% og erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma á bilinu 1,4-3,4%. Sjá nánar
Ferðamálastofa áréttar að fjöldi brottfara erlendra farþega gefur vísbendingu um þróun í komum ferðamanna til landsins. Til að álykta um breytingar á umsvifum í ferðaþjónustu þarf að líta til fleiri mælikvarða s.s. fjölda gistinótta og útgjalda ferðamanna. 
Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar eru undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.