Fara í efni

45.600 brottfarir erlendra farþega í júlí

Mynd: Robert Lukeman á Unsplash
Mynd: Robert Lukeman á Unsplash

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 45.600 í nýliðnum júlí samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia, eða 80,3% færri en í júlí í fyrra, þegar þær voru um 231 þúsund talsins. Danir voru fjömennastir í júlí eða ríflega fimmtungur brottfara og fjölgaði þeim um þriðjung frá júlí í fyrra. Næstfjölmennastir voru Þjóðverjar (20,2%) en þeir voru ríflega helmingi færri en í fyrra.

Frá áramótum hafa um 387 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 65,8% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru brottfarir erlendra farþega um 1,1 milljón talsins.

 


  

 Vart þarf að fjölyrða um ástæður samdráttar í fjölda erlendra gesta til landsins síðastliðna mánuði en allt frá því áhrifa Covid faraldursins fór að gæta hefur orðið hrun í fjölda brottfara eins og sjá má af töflu hér til hliðar. Þannig var samdrátturinn milli ára um 53% í mars, um 99% í apríl og maí, 97% í júní og 80% í júlí.

 

 

 

 

Ferðamenn eftir þjóðernum í júlí

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í júlí tilkomnar vegna Dana en brottfarir þeirra voru tæplega 10 þúsund eða 32,7% fleiri en í júlí í fyrra. Í öðru sæti voru Þjóðverjar með um níu þúsund brottfarir, ríflega helmingi færri en í júlí á síðasta ári. Samtals voru brottfarir Dana og Þjóðverja 41% brottfara erlenda farþega í júlí.

Þar á eftir fylgdu brottfarir Pólverja (21,8%), Svisslendinga (6,9%), Frakka (6,5%), Norðmanna (5,1%), Hollendinga (4,6%), Breta (3,1%), Belga (2,6%) og Eista, Letta og Litháa (2,2%).

 

Ferðir Íslendinga utan

Um 13.300 Íslendingar fóru utan í júlí í ár eða 77,9% færri en í júlí 2019. Frá áramótum (janúar-júlí) hafa um 108 þúsund Íslendingar farið utan en um er að ræða 259 þúsund færri brottfarir en á sama tímabili í fyrra.

Nánari upplýsingar

Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar eru undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

 

 

Mynd eftir Robert Lukeman á Unsplash