Fara í efni

13,5% fækkun í ágúst milli ára

13,5% fækkun í ágúst milli ára

Samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia voru brottfarir erlendra farþega* frá landinu um Keflavíkurflugvöll um 252 þúsund í ágústmánuði eða um 39 þúsund færri en í ágúst árið 2018. Þar munaði mest um fækkun Bandaríkjamanna, en brottförum þeirra fækkaði um tæp 35 þúsund frá því í ágúst 2018. Fækkun milli ára nemur 13,5%.

Fækkun hefur verið alla aðra mánuði frá áramótum, í janúar fækkaði brottförum um 5,8%, í febrúar um 6,9%, í mars um 1,7%, í apríl um 18,5%, um 23,6% í maí, 16,7% í júní og 17% í júlí

Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í ágúst eða 24,9% brottfara og fækkaði þeim um 35,6% milli ára.

Frá áramótum hefur um 1,4 milljón erlendra farþega farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 13,4% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.


 

Fjölmennustu þjóðerninSkipting milli þjóðerna

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í ágúst tilkomnar vegna Bandaríkjamanna sem fyrr segir. Þjóðverjar voru í öðru sæti en brottfarir þeirra voru um 21 þúsund talsins eða 2,6% færri en í ágúst árið áður. Í þriðja sæti voru brottfarir Frakka, um 19 þúsund talsins og fjölgaði þeim um 5,9% milli ára. 

Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Ítala (5,3% af heild), Spánverja (5,1% af heild), Kínverja (5,1% af heild), Breta (4,8% af heild), Kanadamanna (4,3% af heild), Pólverja (3,5% af heild) og Hollendinga (2,6% af heild).


Ferðir Íslendinga utan


Um 48 þúsund Íslendingar fóru utan í ágúst í ár eða 13,6% færri en í ágúst 2018. Frá áramótum hafa um 416 þúsund Íslendingar farið utan eða 6,6% færri en á sama tímabili í fyrra.

 

*Nánari upplýsingar

Talning Ferðamálastofu og Isavia er hugsuð sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum. Um er að ræða handtalningu áður en komið er inn á brottfararsvæði og tölurnar ber að skoða með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér. Talningarnar ná yfir alla sem fara í gegnum hefðbundna öryggisleit.
Ítreka ber að flestir skiptifarþegar eru ekki inni í þessum tölum. Niðurstöður úr könnnum sem Isavia hefur látið framkvæma meðal brottfararfarþega benda til að um 93% brottfararfarþega yfir vetrartímann séu að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi og gisti eina eða fleiri nætur. Þeir sem koma inn í landið án þess apð gista hafa mælst um 2% sjálftengifarþegar hafa mælst á bilinu 2-4% og erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma á bilinu 1,4-3,4%. Sjá nánar
Ferðamálastofa áréttar að fjöldi brottfara erlendra farþega gefur vísbendingu um þróun í komum ferðamanna til landsins. Til að álykta um breytingar á umsvifum í ferðaþjónustu þarf að líta til fleiri mælikvarða s.s. fjölda gistinótta og útgjalda ferðamanna.
Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar eru undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Brottfarir um Flugstöð Leifs Eiríkssonar