Fara í efni

13% fækkun milli ára í janúar

Brottfarir erlendra farþega* frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 121 þúsund í nýliðnum janúar eða um 18 þúsund færri en í janúar árið 2019 samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Fækkun milli ára nemur 13%. Er þetta annað árið í röð sem brottförum farþega fækkar í janúar.

Bretar voru fjölmennastir í janúar eða fjórðungur ferðamanna og fækkaði þeim um 12% milli ára.

Bandaríkjamenn voru næstfjölmennastir, 14,8% af heild, en brottfarir þeirra voru ríflega ellefu þúsund færri en í janúar 2019 eða um 39,4% milli ára. Fækkun Bandaríkjamanna í janúar vegur þannig langþyngst í fækkun farþega í janúar.

 


Fjölmennustu þjóðernin

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í janúar tilkomnar vegna Breta sem fyrr segir en brottfarir þeirra voru um 30.000. Bandaríkjamenn voru í öðru sæti en brottfarir þeirra voru um 18 þúsund talsins eða 39,4% færri en í janúar árið áður.Í þriðja sæti voru brottfarir Kínverja, tæp 13 þúsund talsins og fjölgaði þeim um 25,7% milli ára.

Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Pólverja (6,9% af heild), Þjóðverja (5,5% af heild), Frakka (4,6% af heild), Japana (2,4% af heild), Ástrala og Ný-Sjálendinga (2,2% af heild), Ítala (2,2% af heild) og Íra (2% af heild).

 

Ferðir Íslendinga utan

Um 38 þúsund Íslendingar fóru utan í janúar í ár eða 6,2% færri en í janúar 2019.

Nánari upplýsingar*

Fjöldi ferðamanna eftir þjóðerni er metinn út frá kerfisbundnu úrtaki sem tekið er meðal farþega áður en komið er inn á brottfararsvæði Keflavíkurflugvallar. Niðurstöður eru hugsaðar sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum og ber að skoða þær með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér.
Gagnasöfnun fer fram alla mánuði ársins þar sem farþegar á leið úr landi eru taldir eftir helstu þjóðernum. Gera má gera ráð fyrir að skekkja í hlutfalli hvers þjóðernis sé að meðaltali innan við +/- 0,3% í mánuði. 
Ítreka ber að flestir skiptifarþegar eru ekki inni í þessum tölum. Niðurstöður úr könnnum sem Isavia hefur látið framkvæma meðal brottfararfarþega benda til að um 93% brottfararfarþega yfir vetrartímann séu að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi og gisti eina eða fleiri nætur. Þeir sem koma inn í landið án þess að gista hafa mælst um 2% sjálftengifarþegar hafa mælst á bilinu 2-4% og erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma á bilinu 1,4-3,4%. Sjá nánar
Ferðamálastofa áréttar að fjöldi brottfara erlendra farþega gefur vísbendingu um þróun í komum ferðamanna til landsins. Til að álykta um breytingar á umsvifum í ferðaþjónustu þarf að líta til fleiri mælikvarða s.s. fjölda gistinótta og útgjalda ferðamanna. 
Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar eru undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.