Fara í efni

Travel Match 2024 í Osló

Íslandsstofa vekur athygli á kaupstefnunni Travel Match sem haldin verður í Osló 11. janúar nk. og er stærsti viðburður innan ferðaþjónustu í Noregi.

Þetta er í 13. skipti sem kaupstefnan fer fram og eru það samtök landkynningarskrifstofa í Noregi – ANTOR sem standa fyrir henni, en Íslandsstofa er aðili að samtökunum.

Þarna gefst þeim sem telja sig hafa erindi á norska markaðinn kjörið tækifæri til að koma þjónustu á framfæri við stóran hóp ferðskipuleggjenda í Noregi.

Þátttökugjald fyrir hvert fyrirtæki með eitt borð er 6.500 NOK, eða um rúmar 80.000 ISK.

Sækja þarf um pláss sem fyrst því oftast er uppselt á þennan viðburð.

Nánari upplýsingar um viðburðinn veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is