Fara í efni

Uppbygging aðstöðu fyrir ferðamenn - Þarfagreining og kostnaðarmat

Nánari upplýsingar
Titill Uppbygging aðstöðu fyrir ferðamenn - Þarfagreining og kostnaðarmat
Lýsing

Önnur áfangaskýrsla af þremur, um uppbyggingu aðstöðu fyrir ferðamenn sem var unnin fyrir Stjórnstöð ferðamála. Óskað var eftir ráðgjöf EFLU varðandi umfang á skorti á salernisaðstöðu um landið og forgangsröðun staða þar sem fjölgun salerna fyrir ferðamenn er nauðsyn.

Í skýrslunni var ferðamannastöðum forgangsraðað eftir því hve brýnt er talið að bæta þurfi salernisaðstöðu á viðkomandi stað, kostnaðarmat framkvæmt og áætlaður fjöldi salerna metin. Til að draga þessar ályktanir var m.a. horft í fjölda gesta á hverjum ferðamannastað, lengd heimsóknartímabils, staðsetningu og viðkomutíma ferðamanna.

Niðurstöður skýrslunnar sýna meðal annars að auka þarf fjárframlög til uppbyggingar aðstöðu fyrir ferðamenn ef leysa á salernisvandann á næstu 2-3 árum. Þá er ljóst að salernisaðstaða á mörgum fjölförnum ferðamannastöðum er með allt öðrum brag heldur en áður hefur þekkst. Smáar byggingar með fáeinum salernum duga ekki lengur og frekar er þörf á stórum húsum með mörgum salernum. Afar brýnt þykir að flýta gerð áætlana um hvaða staðir eigi að vera í forgangi með salernismál, bæði hvað varðar stærð og umfang.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Stefnumótun og skipulag
Útgáfuár 2016
Útgefandi Efla / Stjórnstöð Ferðamála
Leitarorð salerni, salernisaðstaða, klósett, skipulag, uppbygging, þurrsalerni, opnun, næturopnun, þjóðvegur, efla, stjórnstöð ferðamála