Fara í efni

Könnun meðal erlendra ferðamanna á Íslandi veturinn 2013/14

Nánari upplýsingar
Titill Könnun meðal erlendra ferðamanna á Íslandi veturinn 2013/14
Lýsing

Niðurstöður úr könnun meðal erlendra ferðamanna sem Maskína sá um að framkvæma fyrir Ferðamálastofu veturinn 2013-2014. Með könnuninni var aflað upplýsinga um erlenda ferðamenn á Íslandi, aðdragandann að Íslandsferðinni, ferðahegðun þeirra á Íslandi, eyðsluhætti og viðhorf þeirra til ýmissa þátta íslenskrar ferðaþjónustu. Um var að ræða netkönnun þar sem netföngum var safnað með skipulögðum hætti á komu- og brottfararsvæði flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á tímabilinu október 2013 til maí 2014. Úrtakið var 4.500 manns og var svarhlutfallið 55,8%. Könnunin var unnin með sambærilegum hætti og síðasta könnun, sem framkvæmd var á tímabilinu september 2011 til maí 2012.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Ferðavenjur
Útgáfuár 2014
Útgefandi Ferðamálastofa, Maskína
Leitarorð ferðamenn, ferðavenjur, fjöldi ferðamanna, tölfræði, talnaefni, talning, vetur, vetrarkönnun