Fara í efni

Áskorun um kröfulýsingu - Ferðaskrifstofuleyfi VE travel / Víking Ferðir / Viking Tours / Rent a Bus fellt úr gildi

18.07.2023

Ferðamálastofa hefur fellt niður ferðaskrifstofuleyfi VE travel / Víking Ferðir / Viking Tours / Rent a Bus kt. 480615-1150 þar sem leyfishafi uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir útgáfu leyfis.

Félagið hefur því ekki lengur heimild til að setja saman, bjóða fram eða selja pakkaferðir eða að milligangast sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni.
Frestur til að senda kröfu í tryggingarfé er til og með 21. september 2023. Krafa þarf að berast innan kröfulýsingarfrests. Kröfur sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar til greina. Hægt er að senda kröfur á netfangið krofur@ferdamalastofa.is. Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.