Fara í efni

Fjárhagsgreining ferðaþjónustunnar 2021 og 2022

Nánari upplýsingar
Titill Fjárhagsgreining ferðaþjónustunnar 2021 og 2022
Lýsing

KPMG hefur unnið ítarlega greiningu á fjárhagsstöðu ferðaþjónustunnar fyrir Ferðamálastofu og eru niðurstöður hennar kynntar í skýrslu sem gefin hefur verið út.  Byggir hún á ársreikningum ferðaþjónustufyrirtækja fyrir árið 2021, utan flugs og flugtengdrar starfsemi. Þá er sótt í margvíslegar aðrar upplýsingar um rekstur og efnahag greinarinnar. Þessi skýrsla ætti að gefa góða mynd af rekstri ferðaþjónustufyrirtækja eftir lok heimsfaraldursins og hvort þau geti staðið undir skuldbindingum sem á þeim hvíla. Skýrslan var kynnt á opnum veffundi Ferðamálastofu og KPMG í dag. Skýrslan er sú fjórða sem Ferðamálastofa gerir með KPMG til að meta fjárhag ferðaþjónustunnar.

Skýrsluna ná nálgast með því að smella á hnappinn að neðan:

Staða íslenskrar ferðaþjónustu í árslok 2022 - fjárhags- og rekstrargreining

Viðspyrnan árið 2022 

  • Seigla og sveigjanleiki ferðaþjónustu fyrirtækja ásamt mótvægisaðgerðum ríkisins gerðu það að verkum að álíka fjöldi fyrirtækja var til staðar 2022 og árið 2019. Þess vegna var afkastageta til staðar til að mynda viðspyrnuna þegar ferðamenn tóku að streyma aftur til landsins.

  • Eftir takmörkuð ár í ferðaþjónustu 2020 og 2021 er áætlað að rekstrarárið 2022 hafi verið gott. Fjöldi ferðamanna var 1,7 milljón sem nemur 85% af fjöldanum 2019. Gistinætur voru hinsvegar fleiri árið 2022 en 2019 meðal annars vegna lengri dvalartíma. 

  • Áætlað er að heildartekjur ferðaþjónustunnar utan flugs á árinu 2022 hafi numið 409 ma.kr., sem eru hærri tekjur en fyrir faraldur. Áætlað er að hagnaður greinarinnar árið 2022 hafi verið um 18,8 ma.kr.

Mótvægisaðgerðir virkuðu

  • Heildar stuðningur hins opinbera við ferðaþjónustu (án flugs) í faraldrinum nam um 50. ma.kr. Þar af fóru 24,7 ma.kr. í gegnum rekstur fyrirtækja í formi hlutabótaleiðar og ráðningarstyrkja beint frá vinnumálastofnun til launþega. Niðurfelling gistináttaskatts nam um 2,1 ma.kr.

  • Til að létta á lausafjárvanda voru veitt lán upp á 26 ma.kr. til fyrirtækjanna. 

  • Þrátt fyrir aðgerðir og stuðning var samanlagt tap á ferðaþjónustu 27 m.a. kr á árunum 2022 og 2021. 

Skuldastaðan batnar en áskoranir framundan

  • Fjárfestingar héldu áfram í faraldrinum þrátt fyrir mótlæti.

  • Skuldir hafa hækkað, en ef afkomubati 2022 varir næstu ár virðist skuldastaða fyrirtækja í ferðaþjónustu viðráðanleg.

  • Aukinn vaxtakostnaður, verðlagshækkanir, styrking krónunnar ásamt átökum á vinnumarkaði geta þó valdið því að skuldavandi aukist á rekstrarárinu sem framundan er.

Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri:

„Viðspyrnuárið 2022 var að mörgu leyti gott og svo virðist sem atvinnugreinin sé að ná fyrri styrk. Afkoma ársins var góð, betri en margir þorðu að vona. Í ljósi þeirra áskorana sem framundan eru fyrir ferðaþjónustu á Íslandi þá er mikilvægt að við snúum bökum saman og ígrundum vel þær aðgerðir sem nú eru í undirbúningi og tryggjum farsæla og sjálfbæra framtíð greinarinnar, landi og þjóð til hagsbóta. Við lítum svo á að niðurstaða þessarar vinnu og sú mynd sem hér er dregin upp sé mikilvægt framlag í þá vinnu.“

Svanbjörn Thorodssen sviðsstjóri ráðgjafasviðs KPMG:

„Það er ánægjulegt að sjá þá seiglu og sveigjanleika sem ferðaþjónustan sýndi í gegnum faraldurinn, en jafnframt að mótvægisaðgerðir stjórnvalda skiluðu árangri. Að faraldrinum loknum voru fyrirtækin enn til staðar og gátu aukið aftur afköst til að taka við þeim mikla fjölda ferðamanna sem streymdi til landsins frá og með öðrum ársfjórðungi 2022. Fyrir vikið var viðreisnin öflug og framtíð greinarinnar aftur björt.“

Kynningu skýrslunnar má nálgast í spilaranum að neðan:

Nánari upplýsingar veita:

Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri

arnar@ferdamalastofa.is

Svanbjörn Thoroddsen, sviðsstjóri Ráðgjafarsviðs KPMG

sthoroddsen@kpmg.is

Flokkun
Flokkur Umfang og áhrif
Útgáfuár 2023
Útgefandi Ferðamálastofa
Leitarorð fjárhagsgreining, fjárhagur, rekstur, hagnaður, arsemi, afkoma