Fara í efni

Tourism, nature and sustainability - A review of policy instruments in the Nordic countries

Nánari upplýsingar
Titill Tourism, nature and sustainability - A review of policy instruments in the Nordic countries
Lýsing

Sjálfbærni í ferðaþjónustu á Norðurlöndunum er umfjöllunarefni þessar skýrslu norrænu ráðherranefndarinnar.

Fjölgun ferðamanna hefur verið mikil á Norðurlöndum undanfarin ár. Fjöldi gesta hefur aukist verulega á vinsælustu ferðamannastöðunum og leitt af sér álag á viðkvæma náttúru og opinbera innviði auk þess sem fjölmörg dæmi eru um kostnaðarsamar björgunaraðgerðir vegna ferðamanna sem lent hafa í hættu.

Til að bregðast við þessu hafa margir viljað nýta hagræn stjórntæki til að tryggja sjálfbæra þróun ferðaþjónustunnar. Í skýrslunni er hins vegar bent á að á Norðurlöndunum geti t.d. réttur almennings til aðgengis að náttúrunni takmarkað möguleika á að koma á aðgangsgjöldum í ferðaþjónustu. Sjálfbær þróun í ferðaþjónustu krefjist heildrænnar nálgunar sem taki tillit til umhverfislegra, samfélagslegra og efnahagslegra þátta með langtímahugsun að leiðarljósi.

Höfundar skýrslunnar leggja því til hóflega notkun hagstjórnartækja í bland við sveigjanlegar stjórnunaráætlanir sem virkja breiðan hóp haghafa, lagasetningu og beitingu annarra stjórntækja hins opinbera.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Stefnumótun og skipulag
Útgáfuár 2018
Útgefandi Norræna ráðherranefndin
Leitarorð sjálfbærni, norðurlönd, umhverfismál, norræna ráðherranefndin, hagstjórn, stefnumótun