Fara í efni

Áfangastaðaáætlun Vesturlands

Nánari upplýsingar
Titill Áfangastaðaáætlun Vesturlands
Lýsing

Í áætluninni er að finna ýmsar upplýsingar um stöðu ferðaþjónustu á Vesturlandi, en henni er ætlað að styjða við ábyrga þróun ferðamála á svæðinu.

Heildstæð stefnumótun

Áfangastaðaáætlanir eru unnar í samvinnu við markaðsstofur landshlutanna. Um er að ræða heildstæða stefnumótun þar sem litið er til skipulags og samhæfingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði, þar með talið þarfir gesta, heimamanna, fyrirtækja og náttúru. 

Áhersla á samtal og samráð

 Á meðan á gerð Áfangastaðaáætlunar Vesturlands stóð var lögð mikil áhersla á samtal við íbúa og aðra hagaðila um framtíðarsýn þeirra varðandi þróun ferðamála á svæðinu. Þetta samtal og samráð lagði grunninn að stefnumótun ferðamála fyrir Vesturland. Í áætluninni eru því sett fram framtíðarsýn, markmið og aðgerðaáætlun sem verður höfð að leiðarljósi næstu ár við uppbyggingu ferðamála. 

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Stefnumótun og skipulag
Útgáfuár 2019
Leitarorð dmp, vestfirðir, áfangastaðaáætlun, áfangastaðaáætlanir, markaðsstofa vesturlands, vesturlandsstofa, ferðamálastofa