Fara í efni

Ferðalög Íslendinga 2020 og ferðaáform þeirra 2021

Nánari upplýsingar
Titill Ferðalög Íslendinga 2020 og ferðaáform þeirra 2021
Lýsing

Ferðamálastofa birtir hér niðurstöður úr nýrri könnun meðal Íslendinga um ferðalög þeirra á árinu 2020 og ferðaáform á árinu 2021. Könnunin var gerð dagana 27. janúar til 15. febrúar og var framkvæmdin í höndum Gallup. Sambærileg könnun hefur verið framkvæmd á vegum Ferðamálastofu í rúman áratug, eða frá árinu 2010.

Sjá eldri kannanir

Vart þarf að fjölyrða um að ferðalög síðasta árs voru mörkuð Covid-19 og fróðlegt að skoða niðurstöðurnar í því ljósi.

Helstu niðurstöður 

  • Ferðalög erlendis 
    • 24% landsmanna ferðuðust til útlanda árið 2020 en um 80% árið 2019.
    • Farnar voru að jafnaði 1,4 ferðir utan, 2,6 ferðum færri en árið áður.
    • Meðalfjöldi gistinótta var 15,8 nætur árið 2020, þremur nóttum skemur en árið áður. 
  • Ferðalög innanlands
    • 86% landsmanna ferðuðust innanlands árið 2020, álíka hátt hlutfall og árið 2019.
    • Farnar voru að jafnaði 5,7 ferðir, einni ferð færri en árið 2019.
    • Um 16,6 gistinóttum var varið á ferðalögum innanlands árið 2020, tæplega þremur lengur en árið áður.
    • Um 80% ferðuðust innanlands í júlí mun fleiri en árið 2019. 
    • Fleiri dagsferðir voru farnar innanlands árið 2020 en árið 2019 eða 5,2 að jafnaði.
  • Ferðagjöf stjórnvalda: Tæp 63% landsmanna sögðust hafa nýtt ferðagjöf stjórnvalda, flestir á höfuðborgarsvæðinu (22,6%). Þar á eftir komu Norðurland með 12,8% og Suðurland 12,1%
  • Fyrirhuguð ferðalög
    • Um þriðjungur landsmanna hefur í hyggju að ferðast meira innanlands í ár en í fyrra, ríflega helmingur svipað og um 15% minna.
    • Mun færri áforma utanlandsferð en á sama tíma í fyrra, 20% gerir ráð fyrir að fara í borgarferð, 18% í heimsókn til vina og ættingja og 17% sólarlandaferð,  

  • Meðmælaskor (NPS) Íslendinga fyrir ferðalög innanlands mældist 32 stig í ársbyrjun 2021 eða álíka hátt og það mældist fyrir ári síðan.  Um er að ræða kvarða á bilinu 1-10 þar sem spurt er hversu líklegt eða ólíklegt sé að fólk muni mæla með ferðalögum innanlands við fjölskyldu eða vini.

Í yfirgripsmikilli skýrslu um könnunina eru niðurstöður settar fram í 14 köflum með myndrænum hætti og í töflum, auk viðauka. Fremst eru samandregnar niðurstöður en þaðan er vísað í nánari útlistun á niðurstöðum einstakra spurninga.

  • Samantekt 
  • Meðmælaskor 
  • Ferðalög almennt 
  • Ferðalög erlendis 
  • Ferðalög innanlands 
  • Gistinætur innanlands 
  • Ferðalög eftir landshlutum 
  • Gistinætur eftir landshlutum 
  • Staðir/svæði heimsótt 
  • Dagsferðir 
  • Staðir/Svæði heimsótt í dagsferðum 
  • Minnisstæðast úr ferðalögum 2020 og ferðagjöf stjórnvalda
  • Áætluð ferðalög 2021
  • Stunduð útivist  

Mikill samdráttur í utanlandsferðum

Um fjórðungur (24%) landsmanna fór í utanlandsferð árið 2020 sem er lægsta hlutfall utanferða sem mælst hefur í könnunum Ferðamálastofu. Þeir sem ferðuðust utan 2020 fóru að jafnaði 1,4 ferðir eða 1,2 ferðum færri en árið 2019. Gistinætur voru að jafnaði 15,8 nætur, 3,2 færri en árið 2019. Spánn (þ.m.t. Kanaríeyjar) og Portúgal voru sem fyrr vinsælasti áfangastaðurinn en þar á eftir komu Danmörk og Bretlandseyjar.  Af þeim sem ferðuðust utan fór ríflega þriðjungur í sólarlandaferð, tæplega þriðjungur í heimsókn til vina eða ættingja og tæplega fimmtungur í borgarferð.

Landsmenn ferðuðust í miklum mæli innanlands

Um 86% landsmanna ferðuðust innanlands árið 2020 eða álíka margir og árið 2019. Langflestir ferðuðust í júlí eða 80% en fjölmagrir ferðuðust í öðrum mánuðum, 64% í ágúst og 61% í júní. Farnar voru að jafnaði 5,7 ferðir eða einni ferð færri en árið 2019. Fleiri gistinóttum var hins vegar varið á ferðalögun innanlands eða 16,6 nóttum að jafnaði árið 2020, um 2,6 nóttum fleiri en árið 2019.

Niðurstöður gefa til kynna að um 30% gistinótta á ferðalögum innanlands hafi verið eytt á Suðurlandi um 28% á Norðurlandi, um 15% á Vesturlandi, um 10% á Austurlandi og um 9% á Vestfjörðum.  

Dagsferðir

Um tveir af hverjum þremur (66%) landsmönnum fóru í dagsferð árið 2020 eða álíka margir og árið 2019. Farnar voru að jafnaði um 5,2 ferðir eða um einni fleiri ferð en árið áður. Um tvær af hverjum fimm dagsferðum árið 2020 voru farnar á Suðurlandið. Þingvellir voru vinsælasti áfangastaðurinn.  

Minnisstæðast 

Þegar spurt var hvað landsmönnum fannst minnisstæðast við ferðalögin innanlands á síðasta ári nefndu flestir einstaka staði eða svæði á landinu en flestir voru þeir staðsettir á Suðurlandi og Norðurlandi. Náttúrutengd atriði voru jafnframt nefnd sem og ferðaþjónustutengd atriði, heimsóknir og samverustundir með vinum og ættingjum.  Afþreying af ýmsu tagi var nefnd sem og veðurfar og menningartengd starfsemi. Auk þess nefndu þó nokkrir hve fáir ferðamenn hefðu verið á ferli. Um var að ræða opna spurningu þar sem svarendur gátu nefnt allt að þrjú atriði.  

Um sjö af hverjum tíu stunduðu reglulega útivist

Spurt var um ástundun útivistar eða 19 útivistarmöguleika alls. Landsmenn virðast hafa hreyft sig meira utandyra á síðasta ári en árið áður (2019). Um sjö af hverjum tíu stunduðu almenna útiveru einu sinni í viku eða oftar en tæplega helmingur hafði gert það árið áður. Um fjórðungur hafði farið oftar en einu sinni í mánuði í lengri gönguferðir og um 17% í hjóla eða fjallaferðir, mun fleiri en árinu áður.

Ferðalögin í ár verða farin innanlands  

Um níu landsmenn af hverjum tíu áforma ferðalög á árinu 2021 og hafa langflestir í hyggju að ferðast innanlands. Um 56% ætla í sumarbústaðaferð, um 46% í heimsókn til vina og ættingja og um 30% í ferð með vinum eða klúbbfélögum. Mun fleiri nefna í ár en í fyrra að þeir ætli í borgar eða bæjarferð innanlands (35%), í ferð þar sem góða veðrið verður elt (35%) og útivistarferð (29%).  

Mun færri áforma utanlandsferðir á árinu en mælst hefur í fyrri könnunum. Fimmtungur gerir ráð fyrir að fara í borgarferð en á sama tíma í fyrra hafði um helmingur (51%)  áform um borgarferð. Tæplega fimmtungur (17%) gerir ráð fyrir að fara sólarlandaferð en á sama tíma í fyrra var hlutfall þeirra sem ætlaði í sólarlandaferð 44%.

Ferðalög á tímabilinu febrúar- maí 2021

Tveir þriðju landsmanna hafa áform um ferðalög innanlands næstu mánuði (febrúar-maí), þar af ætla tæplega þrír af hverjum fimm í sumarbústaðaferð, ríflega þriðjungur að heimsækja vini eða ættingja og um fjórðungur í borgar- eða bæjarferð. Ríflega þriðjungur (36%) ætlar að nýta sér hótelgistingu og um einn af hverjum tíu gistiheimili eða sambærilega gistingu.  

Um könnunina  

Könnunin var unnin sem netkönnun á tímabilinu 27. janúar til 15. febrúar 2021. Úrtakið var 1.982 einstaklingar, 18 ára og eldri af landinu öllu, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.  Svarfjöldi var 1.142 einstaklingar og var þátttökuhlutfallið 57,6%. Gögn könnunarinnar voru vigtuð til þess að úrtakið endurspeglaði þýðið með tilliti til kyns, aldurs og búsetu. Framkvæmd og úrvinnsla var í höndum Gallup í samvinnu við Ferðamálastofu.   

Skýrslan í heild:

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Ferðavenjur
Útgáfuár 2021
Útgefandi Ferðamálastofa
ISBN 978-9935-522-06-1
Leitarorð ferðavenjur, ferðaáform, ferðir 2020, ferðalög, ferðalag, ferðalög íslendinga, innanlands, innanlandskönnun, ferðahegðun, sumar, sumarfrí