Yfir 200 gönguleiðir á vef Ferðamálastofu
Haustið er tími gönguferða hjá mörgum. Því er vert að benda á að yfir 200 leiðir hafa nú verið skráðar í miðlægt skráningarkerfi og gagnagrunni Ferðamálastofu um gönguleiðir og útivistarsvæði um land allt. Sjá má allar birtar leiðir á vef Ferðamálastofu.
Fyrir hverja leið eru skráðar allar nauðsynlegustu upplýsingar, svo sem erfiðleikastig, vegalengd, hækkun, hættur, áætluð tímalengd og fleira. Kort af leiðinni sýnir einnig hæðarprófíl og hægt er að hlaða niður skrá með leiðarupplýsingum fyrir síma, snjallúr og GPS-tæki.
Miðla samræmdum og áreiðanlegum upplýsingum
Markmiðið með gönguleiðaverkefni Ferðamálastofu er að miðla samræmdum og áreiðanlegum upplýsingum um gönguleiðir á Íslandi og hvetja til ferðalaga, útivistar og náttúruskoðunar með ábyrgum og öruggum hætti. Verkefnið auðveldar ferðafólki að finna og velja gönguleiðir sem henta getu, reynslu og áhuga hvers og eins og stuðlar þannig að öruggri og ánægjulegri upplifun. Auk gönguleiða eru einnig skráðar leiðir sem henta fyrir hjól og hlaup.
Fyrir hverja?
Verkefninu er ætlað að nýtast þeim sem vilja birta upplýsingar um leiðir á sínu svæði, t.d. markaðs og áfangastaðastofum landshlutanna og sveitarfélögum. Búið er að skrá leiðir um allt land en aðeins er misjafnt eftir landshlutum hversu margar.
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins tók verkefnið föstum tökum og þróaði vefinn Út um allt, upplýsingavef um útivistarmöguleika á höfuðborgarsvæðinu sem byggir alfarið á grunninum. Þá má einnig nálgast upplýsingar um leiðir í hverjum landshluta á vefjum Markaðsstofu Norðurlands, Markaðsstofu Vestfjarða og Markaðsstofu Vesturlands. Aðrir landshlutar áforma einnig tengingu við grunninn.
Á vef Ferðamálastofu má svo sjá allar birtar leiðir sem fyrr segir.