Talning ferðamanna hafin við Krossneslaug í Árneshreppi
Ferðamálastofa hefur hafið sjálfvirka talningu á fjölda gesta við Krossneslaug í Árneshreppi á Ströndum. Teljarinn er viðbót við talningarkerfi Ferðamálastofu á vinsælum áfangastöðum ferðamanna vítt og breitt um landið en gögn úr þeim talningum má finna á mælaborði ferðaþjónustunnar. Gögn berast daglega með sjálfvirkum hætti um 4G/5G fjarskiptakerfi landsins. Með þessari viðbót telur Ferðamálastofa fjölda gesta á fjórum vinsælum áfangastöðum á Vestfjörðum; á Bolafjalli, við fossinn Dynjanda, á Látrabjargi og nú við Krossneslaug.
Krossneslaug er perla á austanverðum Vestfjörðum sem sífellt fleiri ferðamenn vita af og heimsækja á ferð sinni um svæðið. Flestir sem leggja leið sína í Norðurfjörð fara í laugina. Laugin er kölluð „óendanleikalaug“ (e. infinity pool), vegna óviðjafnanlegs útsýnis þar sem laugarvatn og haf renna saman í sjónlínu laugargesta.


Krossneslaug nýtur þeirrar sérstöðu á Vestfjörðum að hún fær heitt vatn úr nálægum Krossneslaugum. Heitt vatn í jörðu er sjaldgæft á Vestfjörðum þar sem þeir eru elsta svæði Íslands og ekki nálægt gossprungunni miklu sem gengur þvert í gegnum landið frá Reykjanesi í suðvestri til Langaness í norðaustri.
Krossneslaug var steinsteypt og tekin í notkun árið 1954 í þessum fámennasta hrepp landsins, 12,5 m x 6 m að stærð. Gestir laugarinnar hafa gefið henni meðaleinkunn upp á 4,8 af 5 mögulegum á Google, sem er til marks um mikla ánægju í garð staðarins
Heimildir: Guidetoiceland, Wikipedia, Google.
Nánari upplýsingar gefur Jóhann Viðar Ívarsson á rannsóknasviði Ferðamálastofu, johann@ferdamalastofa.is, 899 2000.
Myndir: Markaðsstofa Vestfjarða / www.westfjords.is