Fara í efni

Skráning sýnenda á Mannamót 2027 er hafin

Skráning sýnenda á Mannamót 2027 er hafin

Nú er búið að opna fyrir skráningar á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem verða haldin í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 28. janúar 2027 frá klukkan 12 til 17.

 

Mannamót er fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu en rúmlega þúsund gestir hafa sótt viðburðinn og sýnendur verið um 250 talsins. Tilgangur Mannamóta er að skapa vettvang þar sem landsbyggðarfyrirtæki fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Þar gefst kjörið tækifæri til að hitta fagaðila úr greininni, efla núverandi tengsl og kynnast nýjum samstarfsaðilum.

 

Ísland hefur upp á margt að bjóða, allan ársins hring og á Mannamótum eru sýnendur hvattir til þess að leggja sérstaka áherslu á það sem boðið er upp á yfir vetrartímann.

 

Mannamót er haldið af Markaðsstofum landshlutanna í samstarfi við Isavia Innanlandsflugvelli, Keflavíkurflugvöll og Icelandair.

 

Athugið að aðeins samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofa landshlutanna gefst kostur á að skrá sig á Mannamót til þess að sýna og kynna sitt fyrirtæki. Fyrirtæki sem hafa áhuga á þátttöku en eru ekki þegar samstarfsaðilar geta haft samband við markaðsstofu á sínu svæði.

 


Skráningu sýnenda lýkur þann 16. desember 2026. Verð fyrir sýnendur er 36.500 kr


Nánari uppýsingar og skráning