Reynisfjara: Breytingar vegna ágangs sjávar að undanförnu
Í stórstreymi á sunnudag gróf verulega undan útsýnispalli í Reynisfjöru og tveimur öryggisskiltum sem þar stóðu.
Annað skiltið innihélt kort sem sýnir svæðaskiptingu fjörunnar og hitt var búið viðvörunarljósum og hættumerkjum. Skiltið með kortinu hrundi í kjölfar ágangs sjávar og ljósaskiltið hefur verið tekið niður þar sem grafið hafði svo mikið undan undirstöðum þess að hætta skapaðist.
Eins og aðstæður eru nú í Reynisfjöru er ekki fært lengra en að fjörukambi, þaðan sem er útsýni yfir stuðlabergið og brimið fyrir neðan. Ekki er unnt að ganga að stuðlaberginu sjálfu. Af þeim sökum eru þau öryggisskilti sem sérstaklega vara við hættum við stuðlabergið í raun óþörf við núverandi aðstæður, þar sem aðgengi að berginu er ekki mögulegt af náttúrulegum ástæðum.
Áréttað er að:
- Bílastæði eru opin.
- Veitingastaður er opinn.
- Salerni eru opin.
Gestir eru vinsamlega beðnir um að halda sig uppi á fjörukambinum og virða allar merkingar og fyrirmæli á svæðinu.
Landeigendur hafa þegar hafið undirbúning að endurnýjun mannvirkja. Ný öryggisskilti eru í framleiðslu og verður útsýnispallur byggður upp að nýju þegar aðstæður og öryggissjónarmið leyfa.
Nánari upplýsingar verða veittar þegar framkvæmdir hefjast.