Ný herferð Visit Iceland: Taktu þátt og fáðu aðgang að verkefnasíðunni
Íslandsstofa hefur, í samstarfi við Markaðsstofur landshlutanna og SAF, opnað verkefnasíðu fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki vegna nýrrar alþjóðlegrar herferðar Visit Iceland sem fer í loftið síðar í október og beinist að Bretlandi og Bandaríkjunum. Herferðin er hluti af verkefninu Ferðaþjónusta til framtíðar og geta fyrirtæki tengst herferðinni beint og nýtt hana í eigin markaðsstarfi.
Öll íslensk ferðaþjónustufyrirtæki geta fengið aðgang.
Skráning fer fram á https://pages.visiticeland.com/ og nánari upplýsingar um verkefnið eru á https://www.islandsstofa.is/ferdathjonusta-til-framtidar.
Athugið að efnið á síðunni er trúnaðarmál þar til herferðin fer í loftið og allir skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu við skráningu. Herferðin byggir á því að koma á óvart, svo mikilvægt er að ekkert fari í dreifingu fyrir tímann.