Fara í efni

Ísland er meðal ?leyndustu perlanna? í golfheiminum

Golg vestmananeyjar
Golg vestmananeyjar

Ísland á góða möguleika á að auka hlut sinn í ferðamennsku tengdu golfi, ef marka má niðurstöður verðlauna á stærstu golfferðasýningu heims, sem nú er nýafstaðin. Þar komst landið í úrslit verðlauna þeirra áfangsataða sem kalla má „leyndustu perlurnar í golfheiminum.“

Valið af golfblaðamönnum
Sýningin sem um ræðir, IGTM, var haldin í Valencia á Spáni. Þar veittu alþjóðlegu samtökin IAGTO (The Global Golf Tourism Organisation) verðlaun í nokkrum flokkum til golfáfangastaða um allan heim. Um 150 meðlimir samtaka golfblaðamanna (Golf Travel Writers Association) taka þátt í að velja vinningshafa.

Sex staðir í úrslitum
Í flokknum Undiscovered Golf Destination of the Year fengu 17 áfangastaðir atkvæði í ár en í lokaúrslitum voru síðan sex áfangastaðir: Prince Edward eyja, Búlgaria, Columbía, Ísland, Mississippi og Svíþjóð. Það var síðan Prince Edward eyja í Kanada sem varð fyrir valinu að þessu sinni.

Höfðar til erlendra kylfinga
„Það að komast á blað með þessum áfangastöðum sem þarna voru nefndir og svo í lokaúrslit sex áfangastaða hlýtur að vera vísbending um að Ísland hefur að einhverju leyti náð athygli þessara fjölmiðlamanna sem skrifa um golfferðamennsku um allan heim og ekki síður ákveðin staðfesting á að golfvellir og þjónusta hér á landi höfðar til erlendra kylfinga sem ferðast til að spila golf. Þá nýtist þetta okkur einnig vel til áframhaldandi kynningar erlendis,“ segir Magnús Oddsson hjá Golf Iceland samtökunum.

Hér að neðan má sjá hvaða þættir það eru sem fjölmiðlamennirnir fá sem viðmið þegar þeir eru beðnir um tilnefningar:

• To what extent the destination is “undiscovered”;
• Qualities that make it an interesting golf destination;
• Attractiveness of the region and courses;
• Quality and accessibility of the courses;
• Standard of accommodations;
• Friendliness of the staff;
• Value for money and Speed of Play

*Markmið Golf Iceland era ð kynna og markaðssetja Ísland sem áfangastað fyrir kylfinga. Að samtökunum standa flestir 18 holu golfvellir á Íslandi, Golfsamband, Íslands, Ferðamálastofa og öflug fyrirtæki í ferðaþjónustu.