Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2027
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2027.
Umsóknarfrestur er til kl. 13 þann 27. október 2026 og umsóknir sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar til greina.
Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Í úthlutuninni í ár er lögð áhersla á minna sótt svæði og lengingu ferðatímabils.
Gæðamat umsókna mun taka mið af þessari áherslu og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér nýtt gæðamatsblað sjóðsins sem finna má á upplýsingasíðu um umsóknir.

Útsýnisstígur og myndatökustaður undir Eyjafjöllum er meðal framkvæmda sem sjóðurinn hefur styrkt og hefur einnig hlotið umhverfisverðlaun Ferðamálastofu.
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:
- Öryggi ferðamanna.
- Náttúruvernd, viðhaldi og uppbyggingu ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
- Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda. Fyrirhuguðu verkefni skal í umsókn lýst svo skilmerkilega að mögulegt sé að meta styrkhæfi þess.
Sjóðnum er ekki heimilt m.a.:
- Að bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
- Að fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
- Veita fjármagni til verkefna sem þegar er lokið.
Gæði umsókna
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda. Umsækjendum er bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins. Gæðamatsblað ásamt frekari upplýsingum um sjóðinn, skilyrði lánveitenda og umsóknarferlið má finna á upplýsingasíðu um umsóknir.
Hvar ber að sækja um?
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum island.is en hlekkur á umsókn er á upplýsingasíðu um umsóknir.
Umsóknarfrestur
Umsóknartímabil er til kl. 13 þann 27. október 2026. Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita.