Fara í efni

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar á ferðamannastöðum árið 2016. Umsóknarfrestur er til kl 16:00, fimmtudaginn 22. október 2015. Ath. að umsóknafrestur hefur verið lengdur frá upphaflegri auglýsingu.

Verkefni verða að uppfylla amk. eitt af eftirfarandi skilyrðum

  1. Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum.
  2. Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem einkaaðila.
  3. Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna framkvæmda á ferðamannastöðum eða á náttúruverndarsvæðum.

Áherslur og ábendingar til umsækjenda

  1. Framkvæmdasjóðurinn leggur sérstaka áherslu á verkefni þar sem horft er til heildarmyndar ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
  2. Framlög til einkaaðila eru háð því skilyrði að um sé að ræða ferðamannastaði sem eru opnir almenningi.
  3. Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri upphæð en 50% af kostnaði.
  4. Við yfirferð umsókna er tekið mið af gæðum og trúverðugleika umsókna, mikilvægi verkefnis m.t.t. markmiða Framkvæmdasjóðsins og Ferðamálaáætlunar 2011-2020, sjálfbærnisjónarmiða, nýnæmis o.fl.
  5. Áherslur Framkvæmdasjóðsins er varða skipulag og hönnun, útlit og gæði mannvirkja og merkinga koma m.a. fram í:

Allar umsóknir skulu innihalda:

a. Verkefnislýsingu sem lýsir hugmyndinni með rökstuddum og skýrum hætti.
b. Kostnaðar- og verkáætlun. Hún er hluti af umsóknarformi og fyllt út samhliða.

Fylgiskjöl

a. Ef sótt er um styrk fyrir byggingu mannvirkja eða til annarra framkvæmda þá verður deiliskipulag,
fullnaðarhönnun og framkvæmdaleyfi að liggja fyrir.
b. Ef sótt er um styrk til skipulags- og hönnunarvinnu eða undirbúningsrannsókna þá verður að fylgja
skriflegt samþykki sveitarstjórnar og/eða skipulagsfulltrúa viðkomandi sveitarfélags.
c. Skriflegt samþykki allra landeigenda og/eða umsjónaraðila.

Hverjir geta sótt um?

Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að sækja um styrk að uppfylltum ofangreindum skilyrðum.

Hvar ber að sækja um

Sótt er um á rafrænni þjónustugátt Ferðamálastofu. Byrja þarf á að skrá sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum í farsíma. Þegar innskráningu er lokið skal velja flipann "Umsóknir".

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til kl. 15:00, 16. október 2015. Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Örn Þór Halldórsson umhverfisstjóri Ferðamálastofu í síma 535-5500 eða með tölvupósti: orn@ferdamalastofa.is

Styrkauglýsing til útprentunar