Fara í efni

Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins 2026

Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins 2026

Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins 2026 verður haldið í Hlégarði, Mosfellsbæ, miðvikudaginn 16. september kl. 13.00-15.00 undir yfirskriftinni Seglar og straumar. Rætt verður um ferðaþjónustu í víðu samhengi á höfuðborgarsvæðinu en sérstök áhersla verður á þróun, dreifingu og framtíðarsýn fyrir áfangastaðinn.

 

Dagskrá Ferðamálaþings höfuðborgarsvæðisins:

From Growth to Long-Term Value – Amsterdam's Place Leadership Approach
Maya Janssen, Managing Director, Insights & Marketing Strategy Amsterdam & partners

 

Seglar höfuðborgarsvæðisins – ný samantekt 2026
Hjalti Már Einarsson, framkvæmdastjóri Datera

 

Straumar í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins

 

Sófaspjall með borgar- og bæjarstjórum á höfuðborgarsvæðinu
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkurborgar
Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar
Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar

 

Kristinn Jón Ólafsson, formaður stjórnar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins opnar þingið og veitir verðlaunin Höfuðkraftur ferðaþjónustuverðlaun höfuðborgarsvæðisins.


Fundarstjóri er Gísli S. Brynjólfsson, markaðsstjóri Icelandair.


Húsið opnar kl. 12.30.

Skráning er nauðsynleg.

Hlekkur á skráningu: https://forms.gle/NyzkEZH7tPwP2VTb8