Fara í efni

Ferðamálastofa telur ferðamenn sem koma á Bolafjall

Mynd: Haukur Sigurðsson / Markaðsstofa Vestfjarða  - www.westfjords.is
Mynd: Haukur Sigurðsson / Markaðsstofa Vestfjarða - www.westfjords.is

Ferðamálastofa hefur hafið sjálfvirkar talningar á fjölda gesta sem koma og njóta útsýnis af Bolafjalli við Bolungavík. Gönguteljarinn á Bolafjalli er viðbót við talningarkerfi Ferðamálastofu á vinsælum áfangastöðum ferðamanna vítt og breitt um landið en gögn úr þeim talningum má finna á Mælaborði ferðaþjónustunnar. Gögn berast Ferðamálastofu sjálfvirkt um 4G/5G fjarskiptakerfi landsins.

 

Útsýnispallurinn efst á Bolafjalli er glæsilegt mannvirki og ekki fyrir lofthrædda. Hann er um 60 metra langur meðfram þverhníptum berghamrinum í 638 metra hæð og endi hans skagar fram af toppi fjallsins. Útsýnið, sem blasir við yfir Hornstrandir, Jökulfirði og Ísafjarðardjúpið, er stórbrotið. Því er jafnvel haldið fram að á skýrustu dögum sjáist alla leið til Grænlands af Bolafjalli (heimildir: westfjords.is, efla.is).

 

Bolafjall og útsýnispallurinn hafa notið sívaxandi vinsælda ferðamanna til Vestfjarða á sumrin frá því að pallurinn var vígður haustið 2022. Veginum upp fjallið er jafnan lokað á haustin þegar færð og veður tekur að þyngjast.

 

Nánari upplýsingar gefur Jóhann Viðar Ívarsson á rannsóknasviði Ferðamálastofu, johann@ferdamalastofa.is, 899 2000.