Er íslensk ferðaþjónusta á öruggri leið? - Menntamorgunn ferðaþjónustunnar 9. apríl
Ímynd Íslands sem öruggs áfangastaðar er eitt af mikilvægustu verðmætum íslenskrar ferðaþjónustu. Með þeirri ímynd fylgir rík ábyrgð á því að viðhalda trausti gesta og tryggja að þeir upplifi öryggi við ólíkar aðstæður, hvort sem þeir ferðast um hálendið, sækja náttúru landsins heim eða njóta menningar og mannlífs í þéttbýli. En erum við á réttri leið? Og hvernig getum við, sem atvinnugrein og samfélag, staðið vörð um að Ísland haldi áfram að njóta trausts sem öruggur áfangastaður?
Menntamorgunn ferðaþjónustunnar bregður sér norður yfir heiðar til Akureyrar og býður ykkur til stefnumóts um öryggismál í íslenskri ferðaþjónustu fimmtudaginn 9. apríl kl. 11:00–13:00, á Hótel Kea. Viðburðurinn verður bæði staðfundur og í beinu streymi.
Við hvetjum ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi til að mæta á staðinn, eiga samtal við samstarfsfólk í greininni og taka þátt í umræðunum yfir léttum veitingum. Fyrir þau sem eiga ekki heimangengt verður viðburðinum einnig miðlað í beinu streymi, svo sem flestir eigi þess kost að fylgjast með og sækja sér hagnýta þekkingu.
Dagskráin er sem hér segir:
11:00–12:00 – Erindi
- Dagbjartur Brynjarsson, sérfræðingur í öryggismálum hjá Ferðamálastofu – „Frá atviki til umbóta: Kynning á miðlægu skráningarkerfi"
- Gauti Þór Grétarsson, öryggisstjóri hjá Samherja – „Langflest slys eiga sér aðdraganda“
- Inga Björk Svavarsdóttir, sölustjóri vetrarferða hjá Saga Travel – „Þegar plan A bregst – Skipulag, viðbrögð og ákvarðanir fyrir örugga ferð“
- Guðmundur Örn Magnússon, skíðagæslufulltrúi Hlíðarfjalli
- Sólveig Nikulásdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar – „Viðhorfskönnun um öryggismál ferðaþjónustunnar“
Fundarstjóri er Viggó Jónsson, framkvæmdarstjóri Drangeyjarferða og stjórnarformaður Markaðsstofu Norðurlands
12:00–13:00 – Létt hádegishressing & pallborðsumræður
Pallborðsgestir:
- Ólöf Ýrr Atladóttir, eigandi Sóti Summits
- Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra
- Stefán Frímann Jökulsson, sérfræðingur hjá Náttúruverndarstofnun
- Dagbjartur Brynjarsson, sérfræðingur hjá Ferðamálastofu
Stjórnandi pallborðs er Ágúst Elvar Bjarnason, verkefnastjóri hjá SAF
Skráning hér: 👇
https://haefni.is/menntamorgunn-oruggri-leid