Fara í efni

Heildarfjöldi erlendra ferðamanna árið 2020

Hvítserkur. Mynd: Tetiana Syrova á Unsplash
Hvítserkur. Mynd: Tetiana Syrova á Unsplash

Heildarfjöldi erlendra ferðamanna* til Íslands árið 2020 var tæp hálf milljón, þegar allir innkomustaðir eru taldir. Um er að ræða 75,8% færri ferðamenn en árið 2019 en þá mældust þeir um tvær milljónir.

allir ferðamenn 2ö019 - tafla

Í töflunni hér til hliðar má sjá þróun í fjölda ferðamanna, fimm ár aftur í tímann. Fyrir ferðamenn sem koma í gegnum Keflavíkurflugvöll og með Norrænu má greina niðurbrot eftir þjóðernum. Sjá nánar í Excel-skjali

Heildarfjöldi ferðamanna 2019

Fjöldi ferðamanna

Grafið hér til hliðar sýnir þróunina myndrænt síðustu fimm árin, annars vegar fjölda ferðamanna og hins vegar breytingu frá fyrra ári.

  • Um 478 þúsund ferðamenn* komu með flugi um Keflavíkurflugvöll eða 98,4% af heildarfjölda ferðamanna.
  • Um 1.300 komu í gegnum Akureyrar- og Reykjavíkurflugvöll eða um 0,3% af heild.
  • Um 6.400 komu með Norrænu um Seyðisfjörð eða 1,3% af heild.

 

Farþegar skemmtiferðaskipa 2019Fjöldi erlendra farþega með skemmtiferðaskipum 

Til viðbótar eru farþegar skemmtiferðaskipa en þeir eru taldir sem dagsferðamenn. Um 2.300 
skemmtiskipafarþegar höfðu viðkomu í öllum höfnum landsins árið 2020. Um að ræða 99,6% fækkun farþega frá 2019 en þá heimsóttu 549 þúsund allar hafnir landsins.

Sjá nánar skiptingu farþega og skipa eftir höfnum í excel-skjali.

Í Mælaborði ferðaþjónustunnar má skoða upplýsingar um fjölda skemmtiferðaskipa og farþega á öllum höfunum landsins, unnið upp úr gögnum SafeSeaNet sem er eftirlitskerfi með umferð skipa.

 

*Gera verður ráð fyrir frávikum í talningum á Keflavíkurflugvelli þar sem þær ná til allra brottfara þ.m.t. erlendra ríkisborgara búsettra hérlendis og  sjálftengifarþega. Tölur fyrir farþega með ferjunni Norrænu um Seyðisfjörð og flugfarþega um aðra flugvelli en Keflavík byggja á mati út frá sölu- og farþegatölum.

Mynd Tetiana Syrova á Unsplash