Fara í efni

Ferðamálastofa gerir ráð fyrir tæplega 2 milljónum ferðamanna á næsta ári

Samantekt á spám banka og greiningaraðila á fjölda ferðamanna til Íslands komandi ár ásamt spá Ferða…
Samantekt á spám banka og greiningaraðila á fjölda ferðamanna til Íslands komandi ár ásamt spá Ferðamálastofu

Ferðamálastofa gerir ráð fyrir að um 890 þúsund erlendir ferðamenn muni sækja landið heim í ár og á næsta ári verði fjöldinn svipaður og hér var 2019, eða um 1.950 þúsund. Þetta var meðal þess sem fram kom á málstofu sem Ferðamálastofa tók þátt í hjá Háskólanum á Hólum í liðinni viku.  

Góðar umræður sköpuðust á málþinginu um ferðaþjónustu á Íslandi almennt ásamt því hvernig farið var yfir áhrif faraldursins á fyrirtæki á Norðurlandi vestra. 

Fylgst náið með þróuninni 

Erindi Ferðamálastofu fjallaði um framtíð og horfur í ferðaþjónustu á Íslandi en stofnunin hefur fylgst náið með því hvernig helstu mælikvarðar hafa fallið frá því í mars í fyrra og hvernig vöxtur í þeim sömu mælikvörðum hefur tekið vel við sér á undanförnum mánuðum.  

Samantekt á helstu spám 

Í erindinu kom fram samantekt á spám banka og greiningaraðila á fjölda ferðamanna til Íslands komandi ár ásamt spá Ferðamálastofu, sem byggir á fjölda mælikvarða og atburðum s.s bókunarstöðu hótela, bólusetningarhraða, framboði gistingar, afléttingum takmarkana hérlendis og erlendis, sæta og verði á flugi, verð á gistingu, ofl. 

Eftirspurnarhliðin á ferðaþjónustu hefur vaxið þétt  

Framboð af gistingu og afþreyingu er til staðar í dag og er ekki ástæða til að ætla annað en að reynt verði að  fullnýta þau aðföng sem eru til staðar. Eftirspurnarhliðin á ferðaþjónustu hefur vaxið þétt undanfarið og mun að öllum líkindum halda þeim vexti áfram. Út frá þessu gerir Ferðamálastofa ráð fyrir um 890 þúsund erlendum ferðamönnum á þessu ári og að strax á næsta ári náist álíka fjöldi og var hér 2019 eða um 1.950 þúsund erlendir ferðamenn.