Atvikavaktin – skráning atvika stuðlar að auknu öryggi í ferðaþjónustu
Ferðamálastofa hvetur ferðaþjónustufyrirtæki sem ekki hafa þegar skráð sig í Atvikavaktina til að taka þátt og nýta kerfið í daglegu öryggisstarfi. Jafnframt eru fyrirtæki sem þegar hafa aðgang hvött til að skrá reglulega slys, óhöpp og næratvik.
Skráning atvika er mikilvægur þáttur í að fyrirbyggja slys og óhöpp. Með því að halda utan um atvik, greina aðstæður og læra af reynslunni geta fyrirtæki komið auga á tækifæri til úrbóta, eflt forvarnir og styrkt öryggismenningu innan fyrirtækisins.
Sérstaklega er mikilvægt að skrá næratvik, þar sem litlu munar að slys verði. Slíkar skráningar geta varpað ljósi á áhættuþætti og skapað tækifæri til að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða áður en alvarleg atvik eiga sér stað.
Atvikavaktin er fyrirtækjum að kostnaðarlausu og auðveldar þeim að halda utan um atvik á samræmdan hátt. Skráningarnar nýtast bæði í eigin öryggisstarfi fyrirtækja og til að byggja upp þekkingu sem getur stuðlað að auknu öryggi í ferðaþjónustu almennt.
Taktu þátt í Atvikavaktinni
Ferðamálastofa hvetur fyrirtæki til að nýta Atvikavaktina með virkri skráningu atvika og hvetur þau sem ekki hafa enn skráð sig til að óska eftir aðgangi.
Kynntu þér Atvikavaktina og skráðu fyrirtækið til þátttöku
Nánari upplýsingar: atvik@ferdamalastofa.is.