Á öruggri leið - Miðlum reynslu og mótum framtíðina
Hvernig stendur íslensk ferðaþjónusta sig í öryggismálum og hvaða tækifæri felast í því að byggja upp „öruggasta land í heimi” fyrir ferðamenn?
Á þessum viðburði sameinum við raddir úr öllum hornum ferðaþjónustunnar og að utan til að horfa heildstætt á öryggi.
Við skoðum hvað gengur vel, hvar við getum gert betur og hvernig samvinna og samstillt átak getur eflt bæði öryggi og samkeppnishæfni.
Viðburðurinn fer fram á Múlabergi, Hótel KEA Akureyri, fimmtudaginn 9. apríl kl. 11:00–13:00, en jafnframt verður viðburðurinn í beinu streymi á Facebook.
Dagskrá:
Dagbjartur Brynjarsson, sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu
Gauti Þór Grétarsson, öryggisstjóri hjá Samherja
Inga Björk Svavarsdóttir, sölustjóri hjá Saga Travel
Guðmundur Magnússon, skíðagæslufulltrúi Hlíðarfjalli
Sólveig Nikulásdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
Fundarstjóri: Viggó Jónsson framkvæmdastjóri Drangeyjarferða og stjórnarformaður Markaðsstofu Norðurlands.
Létt hádegishressing í boði og pallborðsumræður stýrt af Ágústi Elvari Bjarnasyni, verkefnastjóra hjá Samtökum ferðaþjónustunnar.
Frítt er á viðburðinn fyrir fyrirtæki og hagaðila í ferðaþjónustu.
Menntamorgnar ferðaþjónustunnar eru samstarfsverkefni Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna