Gömlu brýrnar Gönguleið
Gönguleið sem liggur um gamla þjóðleið yfir þrjár brýr. Hægt er að velja um lengri hringleið eða stutta leið þar sem gengið er fram og tilbaka um óshólma Eyjafjarðarár.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Akureyrarbær
Upphafspunktur
65.635438, -18.066307 (65° 38.126'N, 18° 3.978'W)
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Möl
- Gras
Hindranir
- Vatnsrás - skurður eða renna til að ræsa fram vatni
- Brú - mannvirki sem ber stíg/slóða/veg yfir vatnsfall, sund, gil eða aðra hindrun
Hættur
- Hálka - Hál og sleip leið
- Umferð bíla
- Umferð hjólandi
- Umferð hrossa
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Göngu- og hjólaleið sem liggur um ósa Eyjarfjarðarár, hluti af eldri þjóðleið.
Upphafs- og endarpunktur leiðarinnar er við menningarhúsið Hof en hægt er að stytta leiðina og fara t.d. frá bílastæðinu fyrir sunnan flugstöðvarsvæðið ("Hjartabrautina"), en þá er lagt við suðurenda flugvallarsvæðisins við veg 821. Ef sú leið er valin er gengið fram og tilbaka sömu leið.
Ef allur hringurinn er tekinn þá liggur leiðin frá Hofi eftir Strandstígnum yfir Leirurnar meðfram þjóðvegi 1, inn Eyjarfjarðarbraut eystri nr. 829, þaðan er beygt inn á gamlan malarveg undir gróskumikilli hlíð þar sem m.a. má finna fallegar tjarnir og lítinn foss, þaðan inn þröngan moldartroðning meðfram girðingu. Þaðan er síðan beygt til hægri/austurs inn á gamla þjóðveginn sem liggur þvert yfir dalinn um tvær af gömlu brúnum á gömlu þjóðleiðinni. Eftir þá síðari er haldið til vinstri og yfir nýja brú sem byggja þurfti þegar flugvallarsvæðið var stækkað.
Hér er hægt að taka smá aukakrók þegar komið er yfir seinni gömlu brúnna en þar liggur grasivaxinn slóði til hægri meðfram bökkum árinnar í átt að ósnum. Þar má finna fuglaskoðunarhúsi sem er opið öllum. Leiðin er um vel gróinn slóða og votlendi þegar nær ósnum er komið.
Þegar komið er aftur upp á gömlu leiðina er haldið áfram yfir nýju brúnna við flugvallarsvæðið. Veginum fylgt sem liggur meðfram flugvallargirðingunni og við suð-vestur enda flugvallarsvæðisins er beygt til hægri inn á göngu- og hjólastíg sem liggur meðfram Eyjarfjarðarbraut vestri (nr. 821) í átt að Akureyri. Á þessari leið er farið framhjá Flugsafni Íslands og flugstöðinni, meðfram Strandstígnum/Drottningarbrautinni og komið aftur að byrjunarreitinum við Hof.