Fara í efni

Þjóðhagslíkan fyrir ferðaþjónustu - Ítarleg lýsing á þjóðhagslíkani með ferðageira

Nánari upplýsingar
Titill Þjóðhagslíkan fyrir ferðaþjónustu - Ítarleg lýsing á þjóðhagslíkani með ferðageira
Lýsing

Í þessari áfangaskýrslu er gerð grein fyrir áframhaldandi hönnun á sérstöku þjóðhagslíkani fyrir íslenska ferðaþjónustu. Sett er fram ítarleg lýsing á þessu líkani sem er af svokallaðri DSGE (e. dynamic stochastic general equilibrium) gerð. Það fylgir hefðbundnum byggingarlínum slíkra líkana með þeirri viðbót að framleiðslugeiranum er skipt í tvo hluta;

ferðaþjónustu (eða ferðaiðnað)
og aðra framleiðslu.

Stuðlar líkansins hafa verið stærðarsettir, líkanið hefur verið forritað og lausnir fundnar á formi tímaferla fyrir ferðaþjónustu og aðrar þjóðhagsstærðir fundnar. Að þessar hönnunarvinnu  hefur einkum unnið Marías Gestsson lektor í hagfræði. Að verkinu hafa einnig komið Eðvarð I. Erlingsson, Birgir Þór Runólfsson, Jóhann R. Björgvinsson, Vilborg Júlíusdóttir og Ragnar Árnason. 

Aðrar skýrslur tengdar verkefninu og nánari upplýsingar eru á vefsvæði verkefnisins.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Umfang og áhrif
Útgáfuár 2023
Útgefandi Ferðamálastofa
ISBN 978-9935-522-29-0
Leitarorð hagrannsóknir, þjóðhagslíkan, þjóðhagslíkön, spár, spá, áföll, greining