Fara í efni

Skemmtiferðaskip á Norðurlandi: Könnun meðal farþega á Húsavík og Siglufirði 2019

Nánari upplýsingar
Titill Skemmtiferðaskip á Norðurlandi: Könnun meðal farþega á Húsavík og Siglufirði 2019
Lýsing

Tekjur heimsóknasvæða skemmtiferðaskipa ráðast mest af þeirri afþreyingu sem skipin beina farþega sínum í.

Þátttaka farþega í skipulagðri afþreyingu er mikil en kaup á afþreyingu fara að langmestu leyti fram í gegnum skipafélögin. Þá eru skipin og skipafélög lang veigamesta upplýsingaveita farþega um viðkomustaði.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýútkominni samantekt RMF á niðurstöðum kannana sem gerðar voru meðal farþega skemmtiferðaskipa á Húsavík og á Siglufirði sumarið 2019.

Í samantektinni eru niðurstöðurnar bornar saman við niðurstöður sambærilegrar farþegakönnunar RMF sem gerð var á Akureyri sumarið 2018.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Þórný Barðadóttir
Flokkun
Flokkur Umfang og áhrif
Útgáfuár 2019
Útgefandi Rannsóknamiðstöð ferðamála
ISBN 978-9935-437-98-3
Leitarorð skemmtiferðaskip, akureyri, siglufjörður, norðurland, húsavík, afþreying, útgjöld