Fara í efni

Fjöldi í Vatnajökulsþjóðgarði 2018 til 2022 - Talningar

Nánari upplýsingar
Titill Fjöldi í Vatnajökulsþjóðgarði 2018 til 2022 - Talningar
Lýsing

Í skýrslunni er ferðamennska á hálendinu greind sérstaklega út frá meðalfjölda bifreiða á dag, bæði á korti (1. mynd) og í töflu (6. tafla) (kafli 2.1). Í kafla 2.2 er umferðin á Mið-Suðurlandi greind sérstaklega og einnig í tengslum við Covid-19. Þar eru einnig notuð gögn frá Vegagerðinni um fjölda á þjóðvegi 1 frá Eldhrauni í vestri til Smyrlabjarga í austri (Vegagerðin, 2022).

Í kafla 2.3 eru allir áfangastaðir í Vatnajökulsþjóðgarði greindir út frá meðalfjölda bifreiða á dag. Í þeim kafla, í 9. töflu, er gott að sjá muninn á umfanginu á hálendisstöðum og láglendisstöðum. Í 3. kafla er stuttlega farið yfir umfjöllunina um yfirlit talningastaðanna sem eru í 4. til 9. kafla.

Áður hafa verið gefnar út fjórar skýrslur um fjölda í Vatnajökulsþjóðgarði, sú síðasta með gögnum út árið 2017 (Gyða Þórhallsdóttir & Rögnvaldur Ólafsson, 2018). Þessi skýrsla er því
sjálfstætt framhald fyrri útgáfa. Fyrir nánari útskýringu á aðferðafræði talninganna er vísað ífyrstu útgáfu skýrslunnar (Gyða Þórhallsdóttir & Rögnvaldur Ólafsson, 2015). Aðferðafræðin
hefur einnig verið skilgreind í tveimur vísindagreinum (Thórhallsdóttir & Ólafsson, 2017;Thórhallsdóttir, Ólafsson, & Jóhannesson, 2021). Það er rétt að árétta að í skýrslunni er notast
við tvær skilgreiningar á tímabilum, annars vegar eru mánuðir notaðir í kafla 2.2 og hins vegarskilgreind ferðatímabil í köflum 2.1 og 2.3. Þar er tímabilið háönn notað, sem nær frá 28. til 32.viku árs. Talningar hefjast oft seint á hálendinu og því er gott að geta notað aðra skilgreiningu en almanaksmánuðina. Þannig er einnig hægt að bera saman hálendi og láglendi.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Gyða Þórhallsdóttir
Flokkun
Flokkur Umfang og áhrif
Útgáfuár 2023
Útgefandi Vatnajökulsþjóðgarður
ISBN 978-9935-9343-8-3
Leitarorð jöldi, fjöldi ferðamanna, talning, talningar, þolmörk, þolmörk ferðamennsku, umhverfi, umhverfismál, félagsleg þolmörk, innviðir, vistkerfi, úrtak, Gyða Þórhallsdóttir, vatnajökull, vatnajökulsþjóðgarður, hálendi, hálendið