Fara í efni

Íbúðagisting - Rannsókn á umfangi íbúðagistingar í ferðaþjónustunni

Nánari upplýsingar
Titill Íbúðagisting - Rannsókn á umfangi íbúðagistingar í ferðaþjónustunni
Lýsing

Háskólinn á Bifröst hefur gert skýrslu um umfang íbúðagistingu í ferðaþjónustu samkvæmt samningi við Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið. 

Íbúðagisting hefur verið fyrirferðamikil í uppbyggingu ferðaþjónustunnar en skráningu útleigðra íbúða hefur verið talið ábótavant og óljóst hvernig samkeppnistaða íbúðagistingar væri miðað við hefðbundnar tegundir ferðamannagistingar. Dregið er fram umfang íbúðagistingar og þess vanda sem myndast af slakri skráningu íbúða sem leigðar eru út í skammtímaleigu til ferðamanna. Íbúðagisting er hluti af deilihagkerfi sem byggir á því að einstaklingar geti leigt eða fengið lánuð gæði í eign annarra sem ekki eru nýtt.

Í skýrslunni er að finna tillögur til úrlausna, svo auðveldara verði að skrá íbúðir sem leigðar eru í skammtímaleigu til ferðamanna og eins að greiða af þeim viðeigandi skatta og gjöld.

Skýrslan skapar góðan grunn til viðbragða og aðgerða til að skrá íbúðir, draga úr skattsvikum og skýra reglur um íbúðir sem leigðar eru til ferðamanna til skamms tíma.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Árni Sverrir Hafsteinsson
Nafn Jón Bjarni Steinsson
Nafn Gunnar Alexander Ólafsson
Nafn Brimar Aðalsteinsson
Nafn Snorri Guðmundsson
Nafn Vilhjálmur Egilsson
Flokkun
Flokkur Gisting
Útgáfuár 2015
Útgefandi Háskólinn á Bifröst
Leitarorð biröst, gisting, hótel, gistiheimili, íbúðagisting, íbúðir, leiga, húsaleiga, airbnb, svört atvinnustarfsemi, leyfi, leyfismál, umfang, rekstur, skráning